Ef ríkið selur annan bankann eða báða er eitt víst. Við, neytendurnir, borgum bankana þegar upp verður staðið. Engir aðrir koma til greina. Einfaldara getur það ekki orðið.
Jón Daníelsson sagði eitt sinn í viðtali við mig, að best sé fyrir neytendur að bankarnir, verði þeir seldir, seljist á sem lægstu verði. Því lægra söluverð, því minna þarf að rukka okkur. Hugsanlegir kaupendur munu alltaf afla tekna fyrir kaupverðinu, ofan á arðinn.
Þetta er svo augljóst. Áslaug Arna fer fremst stjórnmálamanna í áróðri fyrir stórlækkuðum bankaskatti. Hún segir að þá muni bankar lækka vexti og önnur gjöld. Sem er bull. –sme