Kristrún féll á fyrsta prófi sem formaður Samfylkingarinnar. Hvernig fær hún þetta til að ganga upp? Í einræði Bjarna með fjarmál ríkisins rotna allir helstu innviðir þjóðarinnar niður.
Kristrún á að vita að enginn flokkur og engin manneskja hefur náð að stýra Bjarna frá því að lækka skatta og veiðigjöld á það fólk sem hefur það best. Og öfugt. Eins og mörg dæmi sanna.
Kristrún er svo sem ekki líklegri en aðrir til að ná tökum á Bjarna. Að fá hann af eigin braut. Kristrún í raun hótar þjóðinni að skuggi Bjarna mun ná yfir samfélagið í góðan tíma til viðbótar.
-sme