- Advertisement -

Hrægammur í stjórnarráðinu?

ALÞINGI Til harðra orðaskipta kom á Alþingi fyrir skömmu. Björn Valur Gíslason átti upphaf umræðunnar þegar hann flutti þessa ræðu.

Þar sagði hann meðal annars að nú hafi; „…komið í ljós að forsætisráðherrahjónin eru í gegnum peningafélag sitt skráð á Tortóla meðal kröfuhafa í alla íslensku bankana upp á mörg hundruð milljónir króna. Á meðan íslenskur almenningur, fjölskyldur og heimili, þurftu í gegnum hrunið og í kjölfar þess að berjast frá degi til dags til að halda heimili sínu gangandi innan gjaldeyrishafta og fallinnar krónu og reyna að standa í skilum með skuldbindingar sínar voru forsætisráðherrahjónin að höndla með fjölskylduauðinn í erlendum skattaskjólum.“

Fellir slagorð Framsóknar

„Á sama tíma og forsætisráðherrann krafðist þess ítrekað úr þessum ræðustól á síðasta kjörtímabili að fá að vita hverjir væru raunverulegir eigendur bankanna, hverjir kröfuhafarnir væru, hrægammarnir, var hann einn af þeim. Þetta setur slagorð Framsóknarflokksins um heimilin í landinu í allt annan og óskemmtilegri búning en hingað til,“ sagði þingmaðurinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

 Stenst ekki kröfur til stjórnmálamanna

„Það er allt rangt við þetta mál, virðulegi forseti, og það stenst á engan hátt réttmætar lágmarkskröfur sem gerðar eru til stjórnmálamanna. Það er því fullkomlega eðlileg ósk að þessum þingfundi verði nú frestað og forsætisráðherra verði gert kleift að útskýra mál sín fyrir Alþingi. Jafnframt er eðlilegt að gera kröfu til annarra ráðherra og þingmanna sem enn hafa ekki upplýst um sambærileg mál, ef einhver eru, að þeir fái tækifæri til þess sömuleiðis. Það væri farsakennt, virðulegi forseti, að halda þessum þingfundi áfram án þess. Ég ítreka þá ósk mína að þingfundi verði frestað og forsætisráðherra útskýri mál sín fyrir Alþingi.“

 

Forsetinn sagði nei

Þess er best að geta að forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, hafnaði mjög ákveðið beiðni þingmannsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: