- Advertisement -

Óvenju mörg verk eftir konur

MANNLÍF Næstkomandi mánudagskvöld, 22. febrúar, kl. 18 verður 97. uppboð Gallerís Foldar, að Rauðarárstíg 14. Að þessu sinni mun sýning á verkunum hefjast degi fyrr en venja hefur verið, eða fimmtudaginn 18. febrúar en verkin verða sýnd daglega fram að uppboði á opnunartíma Gallerísins og á myndlist.is.

Á uppboðinu verða boðin upp sérlega mörg eigulegt verk eftir margar af helstu listakonum Íslands á 20. öldinni en nokkuð óvenjulegt er að fá svo mörg verk kvenna, einkum frá fyrstu áratugum 20. aldarinnar á eitt og sama uppboðið. Sem dæmi má nefna þrjú verk eftir Kristínu Jónsdóttur, þar af ein vatnslitamynd og svo tvö olíuverk; blómamynd og landslagsverk. Þá verður boðin upp abstrakt mynd eftir Nínu Tryggvadóttur og olíuverk eftir Louisu Matthíasdóttur. Þá hefur í annað sinn ratað á uppboð verk eftir Katrínu Friðriks. Ekki er langt síðan annað verk úr sömu seríu var slegið á 2,6 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold. Mikill áhugi er á verkum Katrínar sem sýnt hefur víða um heim. Þá má nefna verk eftir Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur en það telst alltaf til tíðinda þegar verk eftir hana rata á uppboð. Af nýrri verkum má nefna olíumálverk frá Hótel Borg eftir Karólínu Lárusdóttur, verk eftir Lísbetu Sveinsdóttur, tvö verk eftir Línu Rut, olíuverk eftir Gunnellu og Heklu Björk, auk myndar eftir Sigurborgu Stefánsdóttur.

Almennt má segja að óvenjugott úrval sé af verkum ýmissa samtímalistamanna. Auk verka eftir áðurnefndar listakonur má nefna Sigtrygg Bjarna Baldvinsson, tvö verk eftir Tryggva Ólafsson, verk eftir Einar Hákonarson, Pétur Gaut og Tolla og þrjú verk eftir Baltasar.

Á uppboðinu verða einnig boðin upp prent eftir bæði Míró og Salvador Dalí, hvort um sig skemmtilegt og verk eftir nævistana Stórval og Sæmund Valdimarsson en ein af tréstyttum Sæmundar verður boðin upp. Þá verða boðnir upp þrír plattar eftir Einar Jónsson og glerverk eftir Leif Breiðfjörð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Af eldri kynslóð listamanna má nefna tvö áhugaverð geometrísk verk, annað eftir Hafstein Austmann, hitt eftir Jóhannes Jóhannsson. Jóhannes á einnig skemmtilega mynd af börnum að leik á uppboðinu. Tvær myndir verða boðnar upp eftir Valtý Pétursson og þrjár eftir Gunnlaug Blöndal, portrettverk, landslagsverk og Þingvallamynd. Einnig eru þrjú verk eftir Jón Stefánsson; Við hafið, Öræfajökull og fín mynd af Heklu. Þrjú verk eftir Þórarinn B. Þorláksson verða boðin upp. Það fyrsta er af dóttur listamannsins, annað af bænum Saurbæ á Rauðasandi og svo mynd af Hrafnabjörgum. Þá er afar fína vatnslitamynd frá 1906 eftir Ásgrím Jónsson að finna á uppboðinu en hún er af Arnarstapa. Að venju verða einnig boðin upp nokkur verk eftir Kjarval, meðal annars olíuverk og teikningar. Síðasta verkið á uppboðinu er eftir hann og nefnist Smalinn og er að mörgu leyti sérstætt þótt það beri höfundi sínum glöggt vitni. Annað olíuverk er af Dyrfjöllum og er svipað verki er í Kjarvalsbókinni sem er frá 1921. Þessi verk bera það með sér að hafa verið máluð á svipuðum tíma. Eins eru Kjarvalsverk á pappír sem talin eru frá þriðja áratugnum á uppboðsskránni sem og afar sérstætt sendibréf frá honum með  fallegri fuglsmynd boðin upp.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: