- Advertisement -

Sigmundur Davíð svarar Vinstri grænum

Ég verð að segja að ég skil þetta ekki, sagði stjórnarþingmaður við Miðjuna þegar rætt var um spurningu Steingríms J. Sigfússonar til Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson forsætisráðherra, og Sigmundur svarar á Alþingi í dag. En stjórnarþingmaður sagðist taka heilshugar undir spurningar Steingríms, og bætti við að Steingrímur, sem fyrrverandi atvinnuvegaráðherra, hefði svo sem haft öll tök á að gera meira en hann gerði. „Hann hafði völd til þess.“

Steingrímur spurði hverju það sætir að þrátt fyrir fjölda ráðherranefnda, ráðgjafarnefnda og starfshópa á vegum ríkisstjórnarinnar fæst enginn slíkur vettvangur við atvinnumál?

Og hann spyr einnig hverju líði vinnu um mótun heildstæðrar atvinnustefnu sem var langt komin í tíð fyrri ríkisstjórnar?

Katrín  Jakobsdóttir, formaður Vinsri grænna fær einnig svör í dag, frá forsætisráðherra, við tveimur spurningum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sú fyrri hljóðar svoan: Hver er stefna forsætisráðherra hvað varðar einkavæðingu ríkiseigna? Kemur til greina að selja einhver fyrirtæki eða aðrar eignir ríkisins á kjörtímabilinu og þá hvaða?

Og sú síðari er svona: Kemur til greina að einkavæða einhverja starfsemi á vegum ríkisins á kjörtímabilinu með því að fela einkaaðilum að annast hana á grundvelli samninga og þá hvaða?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: