Er þetta ekki ógeðslega vont? – Nálastungur í návígi

acupunctureÁgústa Andersen nálastungufræðingur og hómópati skrifar um náttúrulækningar

Það er ekkert skrýtið við það að mörgum finnist tilhugsunin um að láta stinga sig með nálum til heilsubóta vera furðuleg, jafnvel frekar óárennileg. Enda ekki hægt að fara í kringum það að í grundvallaratriðum snýst þetta um að nálar eru settar í líkamann, að vísu gert fólki til heilsubóta. Enda þótt þær séu hannaðar til að valda sem minnstum sársauka, finnur fólk stundum fyrir því þegar þeim er komið fyrir. Hinsvegar er til þess ætlast að sársaukann taki fljótt af, vægur verkur í nokkrar sekúndur er eðlilegur, en það er algengt að fólk finni afar lítið fyrir nálunum.

Nálastungur eru líklega frægastar fyrir verkjameðferð, en þær eru oft notaðar í tengslum við aðrar meðferðir sem miða að því að minnka eða losa fólk við viðvarandi sársauka, oftast vegna verkja í liðum og vöðvum. En áhrif þeirra og möguleikar ná langt út fyrir það að geta losað um óþægileg einkenni, heldur eru þau módel sem nálastungur byggja á þannig að meðferðin er til þess gerð að styðja og styrkja undirstöðurnar. Með því að skoða gaumgæfilega hver manneskjan er, hennar heilsusaga og aðrir kvillar, er fengin ákveðin heildarmynd sem meðferðin miðast við, frekar en að eltast bara við einkennin. Markmiðið er nefnilega að hvetja og efla meðfædda eiginleika manneskjunnar til að komast uppúr þeim hjólförum heilsuleysis sem við öll festumst stundum í og hrinda af stað bataferli þar sem skrefin í átt að bættri líðan koma hvert af öðru, eitt í einu.

Vegna þess að nálastungur eru heildrænar, litið er á manneskjuna sem eina heild hugar, líkama og sálar, eru það ekkert síður einkenni á andlega eða tilfinningalega sviðinu sem eru mikilvæg að taka með í reikninginn. Í reynd þá eru fyrstu batamerki oft þau að fólk segist „líða betur í sjálfu sér“ eða eitthvað í þá veru, er afslappaðra og í meira tilfinningalegu jafnvægi, jafnvel glaðara. Þetta er vegna þess að andleg líðan er mjög mikilvægur þáttur í heilbrigði og er það oft það fyrsta sem okkar innri viska setur í forgang að laga. Oft eru þetta einmitt andleg einkenni einhvers ójafnvægis sem hverfa, eins og t.d. við það að upplifa mikið óréttlæti og verða reiður, þarf fyrst að sleppa takinu á reiðinni áður en vöðvabólgan og höfuðverkirnir sem komu í kjölfar reiðinnar lagast.

Nálastungur eru líklega mest rannsakaða aðferðin innan náttúrulækninga. Að sama skapi eru þær líklega „viðurkenndasta“ aðferðin innan náttúrulækninga ásamt e.t.v. nuddi. Nálastungur eru sömuleiðis kenndar við marga háskóla erlendis sem gera sömu akademísku kröfur til nemanda í þeirri grein og annarra, og er þetta orðin algeng forgangskrafa þeirra sem vilja láta skrá sig í fagfélög nálastungufræðinga erlendis. Við Íslendingar eigum ennþá svolítið í land með þetta, en það er fullkomlega eðlilegt að spyrjast fyrir um menntun þeirra sem nota nálar í heilsubætandi tilgangi, því að það er ekki sama hvernig þeim er beitt. Það græða allir á því að þær séu notaðar af fólki sem hefur til þess bestu menntun og eru sérfræðingar í notkun þeirra.

Meðferðin sjálf getur tekið frá örfáum skiptum upp í nokkrar vikur, jafnvel mánuði, alveg eftir því hvað við er að eiga. Þumalputtareglan er sú að því lengur sem viðkomandi kvilli eða einkenni hafa verið staðar, því lengri tíma tekur meðferðin, en á þessu eru undantekningar að sjálfsögðu. Algengast er að fólk mæti einu sinni í viku í u.þ.b. 5-6 skipti og þá er staðan tekin og lengdur tími á milli meðferða eftir því sem bætt líðan leyfir. Oftast fer fólki að líða betur eftir fyrstu skiptin, fer að upplifa bata sem svo vinnur á eftir því sem meðferðinni vindur fram. Það sem er vert að nefna hér er að það þarf ekki endilega að vera um að ræða skilgreinanlegan sjúkdóm eða einkenni til að nálastungur virki. Oft er það þannig a fólki líður bara ekki vel, án þess að það sé hægt að festa fingur á það hvað sé á ferðinni. Hérna koma sterkar hliðar nálastungna til kastanna sem snúast um að meta ástand einstaklingsins, en vellíðan er einungis mælanlegt í persónulegri upplifun hvers og eins. Ef þér líður illa, þá er eitthvað að, sama hvort það er hægt að setja það undir fyrirfram skilgreint sjúkdómsheiti eða ekki.

En niðurstaðan er; jú, þetta er stundum aðeins vont, en ávinningurinn getur náð langt út fyrir þann fórnarkostað.

Gefðu greininni einkunn

1 Stjarna2 Stjörnur3 Stjörnur4 Stjörnur5 Stjörnur (Einkunnir gefnar:5, meðaltal: 4,20 out of 5)
Loading ... Loading ...

8 svör við Er þetta ekki ógeðslega vont? – Nálastungur í návígi

  1. Friðrik's Gravatar Friðrik
    19/03/2010 at 22:52 | Permalink

    Það er satt sem þú segir að nálastungur séu mikið rannsakaðar, ég bara man ekki eftir að þær hafi einhverntíman haft meiri virkni heldur en lyfleysa, nema þá örlítil staðdeyfi áhrif.

  2. Ómar Þ. Ragnarsson's Gravatar Ómar Þ. Ragnarsson
    20/03/2010 at 00:18 | Permalink

    Ég og konan mín getum borið vitni um mátt nálastungulækninga og einnig það að maður finnur varla fyrir þeim.
    Við leituðum fyrst til hans Ríkharðar Jósafatssonar hjá Nálastungum Íslands í Orkuhúsinu þegar öll önnur ráð dugðu ekki.

    Í mínu tilfelli, samfalli í þremur hryggjarliðum, beitti Ríkharður handaþrýstingi sjúkraþjálfara ásamt nálastungunum, og það var ansi sársaukafullt.
    En bara það eitt að eiga í vændum að losna við verkina, máttleysið og náladofann, sem fylgdi klemmdum taugum, gerði það að verkum að manni tókst að gíra sig upp að elska þennan sársauka, sem var óhjákvæmilegur.

  3. Ágústa Andersen's Gravatar Ágústa Andersen
    20/03/2010 at 00:22 | Permalink

    Ég er sjálf með rannsóknargráðu (BA Hons) í nálastungum frá Oxford Brookes University og tel mig geta sagt með nokkurri vissu að rannsóknir sem benda til jákvæðra áhrifa nálastungna eru til í miklu magni, og bætist við fjölda þeirra á hverjum degi. Hinsvegar held ég því ekki fram að nálastungur séu töfralausn við hverju sem er, og það er með þær eins og margt annað að það er auðvelt að finna rökstuðning bæði með og á móti. Eftir stendur að nálastungur eru nýttar í síauknum mæli innan hefðbundinna heilbrigðisgreina og eru kenndar við viðurkennda háskóla einmitt vegna jákvæðra niðurstaðna rannsókna.

  4. Ágústa Andersen's Gravatar Ágústa Andersen
    20/03/2010 at 00:24 | Permalink

    Takk fyrir þetta innlegg Ómar, það er einmitt oft ekki fyrr en í harðbakkann slær að maður lætur sig hafa það, en þá er það líka þess virði!:)

  5. Friðrik's Gravatar Friðrik
    20/03/2010 at 00:25 | Permalink

    Mér þætti vænt um að sjá einhverjar af þessum rannsóknum.

  6. Einar Tvennar's Gravatar Einar Tvennar
    20/03/2010 at 12:39 | Permalink

    Nýleg rannsókn frá Cambridge sýnir að nálarstungur gagnast eingöngu þeim sem trúa enda aðferð sem á uppruna sinn á steinöld.

  7. Ágústa Andersen's Gravatar Ágústa Andersen
    20/03/2010 at 16:11 | Permalink

    Annars bið ég lesendur í athugasemdakerfi vinsamlegast að skilja eftir fullt nafn líkt og ég kem fram undir fullu nafni ef þeir óska svars, og sýna virðingu og stillingu. Gott væri líka að fullyrðingar væru byggðar á skilningi og umburðarlyndi, frekar en að vilja ná yfirhöndinni í rökræðum eða gera lítið úr „gagnaðila“ eins og algengt er að sumir vilji magna upp hér á netinu (yfirleitt í skjóli nafnleysis) ég er ólíkleg til að standa í svoleiðis löguðu.

    Annars er ég alveg til í að ræða málin af virðingu og skynsemi, en áskil mér rétt til að eyða ekki miklum tíma í þá sem vilja bara dissa mig og ekkert annað.

  8. Fóa's Gravatar Fóa
    08/04/2010 at 16:50 | Permalink

    Nálastungur einfaldlega virka! Það er ekki flóknara en það. Ég velti fyrir mér hvers vegna þeir sem ekki trúa á þetta aldagamla fyrirbæri prófa ekki bara að láta stinga sig? Kannski hræddir við að finna til? Það er óþarfi.
    Ég fór til Ríkharðar Jósafatssonar í Orkuhúsinu og fékk þar nálastungur og fleira vegna taks í baki. Algerlega frábært.
    Svo þekki ég konu sem fékk nálastungur til að aðstoða hana við að hætta að reykja, það snarvirkaði.
    Ég mæli með þessu fyrir alla, það sakar að minnsta kosti ekki að láta á reyna. :-)

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?