
Bein útsending á vpype
Vpype er spánýtt forrit sem tengist Facebook. Með Vpype breytist Facebook síðan þín í sjónvarpsrás þaðan sem þú getur sent beint til vina og vandamanna.
Vpype er svo nýtt að það verður fyrst frumsýnt á mánudaginn í tengslum við stærstu ráðstefnu um samfélagsmiðla, sem haldin hefur verið fram að þessu og fer fram í London. Forritið verður vígt við hátíðlega athöfn og verður þá sent um Facebook Mari Smith, sem er samfélagsvefjagúru í Bandaríkjunum og yfir á ráðstefnuna í London.
Vpype er ókeypis og fyrir alla, sem eiga Facebook profile eða Facebook viðskiptasíðu. Forritið tengist hvoru tveggja og gefur þar með ótal marga möguleika. 300 manns geta tekið við útsendingunni í senn og ef sent er frá Facebook profile, er hægt að velja á milli vinastillinga. Þannig er hægt að velja hvort sent er á alla, eingöngu vini, vini og vini þeirra eða jafnvel bara fyrir mann sjálfan.
Útsendingin fer þannig fram að sent er með webcam frá tölvunni. Þeir, sem vilja senda í meiri gæðum og eiga PC (gildir nefnilega ekki fyrir Mac ennþá), geta sent HD, en þá þarf væntanlega líka að huga að bandbreiddinni. Gæðin fara að sjálfsögðu eftir myndavél og mikrófón sem sent er frá. Það er betra að vera með sérstakan mikrofón. Skrifari þessa pistils prófaði með tölvumike og það gaf of mikið af umhverfishljóðum. En þrátt fyrir allt, eru gæðin ótrúlega mikil og lítið um hökt. Útsendingin fer sem sagt fram frá einni Fjesbók, þannig virkar útsendingin alveg eins og venjulegt, gamaldags sjónvarp. Í eina átt. En til að ná gagnvirkninni er innbyggt spjall í útsendinguna og þannig getur sá eða sú sem sendir svarað t.d. spurningum í beinni. Þannig geta 300 manns að hámarki spjallað samtímis við þann sem er í beinni.
Vpype sendir út auglýsingu um viðburðinn á Facebook og/eða Twitter. Í uppsetningu er hægt að stilla lengd útsendingar, áætlaðan þátttakendafjölda og hvort geyma eigi útsendinguna til seinni nota. Að útsendingu lokinni er þá hægt að deila myndbandinu á Facebook og Twitter eða þá að setja inn í bloggsíðu á sama hátt og unnið er með youtube myndbönd. Þannig hafa t.d. allir aðdáendur viðskiptasíðunnar aðgang að myndbandinu, sem opnar nýjar víddir fyrir þær síður. Að sjálfsögðu er svo hægt að gefa álit sitt á afurðinni.
Næsta skref er að skella sér í gang. Hér er slóðin – við getum náð okkur í forritið þótt frumsýningin sé fyrst á mánudag. Gjörið svo vel: http://vpype.com/



Marianna!!
You are awesome – thank you for this fantastic recap and the super prompt posting of it, to boot!!! (Thanks to Google translate, I was able to read it. hehe!!).
I’m putting up my own post now and will link to yours.
Cheers,
@marismith
Thank you very much for the well done story connected with this good post. But to see the best essay writing students must know some stuff just about buying essays.
The essay paper created by professional writers, can give different students an academic success. Thus that is valuable to buy term papers to gain your main purpose, I do guess.
You know that you should have a job in custom dissertation or custom writing services, because students would like to read the good enough article like this good post or thesis writing service and they buy a essay online.
Did you hear about freelance writers ? I wanted to say that your stuff referring to this good post is great! Thank you so much for making this!
People will buy a term paper about this good post, using the assistance of the research paper writing services. You definately will need use plagiarism detect. Now, you don’t have to worry about getting a failing mark simply because you have been accused of plagiarizing someone else’s work.