Amadou & Mariam með opnunartónleika á Listahátíð í Reykjavík

_DSC2805

Dagana 12 – 5 júní verður haldin árlega Listahátið Reykjavíkur en hátíðin var fyrst haldin árið 1970.  Næstu daga og vikur munu skipurleggjendur hátíðarinnar kynna þá listamenn sem taka munu þátt í hátíðinni í ár en nú þegar hafa verið kynnt tvö atriði á hátíðinni.  Hinn heimsþekkti norski píanóleikari Leif Ove Andsnes heldur tónleika  þann 13. maí næstkomandi ásamt systkinunum Christian Tetzlaff fiðluleikara og Tönju Tetzlaff sellóleikara.

Í dag var svo sagt frá því að  hljómsveitin Amadou & Mariam sem er án efa eitt mest spennandi númer tónlistarheimsins í dag kæmu fram á opnunartónleikum hátíðarinnar þann 12. maí í Laugardagshöll.   En þau eru einna þekktust fyrir að hafa komið fram við afhendingu Friðaverðlauna Nóbels þegar Obama forseti Bandaríkjanna fékk þau.   Parið, sem vakið hefur heimsathygli fyrir einstakan og líflegan tónlistarbræðing sinn, koma nú hingað til lands með hljómsveit og sannkallaða heimstónlistarstemmningu sem lofuð hefur verið í hástert og samanstendur af rafmangsgíturum, kúbverskum lúðrum, egypskum ney flautum, sýrlenskum fiðlum, indverskum tablas trumbum og margvíslegum ásláttarhljóðfærum frá Malí.

Ferill hjónanna frá Bamakó spannar yfir þrjá áratugi en þau hafa á síðustu árum unnið með fjölda listamanna og hljómsveita, m.a. Damon Albarn og David Gilmour úr Pink Floyd. Þau voru fengin til að semja þemalag HM í fótbolta í Þýskalandi árið 2006 og hafa fengið fjölda verðlauna fyrir lagasmíðar sínar og plötur, m.a. Songlines Awards fyrir hljómplötuna Welcome to Mali frá 2008 sem vakti verðskuldaða athygli á tónlist þeirra út fyrir ramma heimstónlistarinnar. Í kjölfarið var dúóið fengið af Coldplay til að koma fram á Viva la Vida tónleikaferð hennar um heiminn en sveitin hefur einnig komið fram með Scissor Sisters og Blur

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Faxaflóa, sem staðið hefur fyrir margvíslegum viðburðum síðastliðið ár m.a. tónlistarhátíðinni Réttir – Reykjavik Round-Up.

Miða á tónleikana má kaupa á www.listahatid.is og www.midi.is

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?