Það kann að vera draumur margra að halda skipulagi á verkfærakassanum en oftast nær má finna allar tegundir, skrúfa, bolta og nagla í einum graut á botninum á verkfærakassanum. Kanadískur maður af nafni Wulf hefur fundið lausn við þessu en hann er áhugamaður um allskyns smíðar og tækniföndur, en hann skrifar reglulega á síðuna Craftster.org. Hann smíðaði þetta forláta skrúfubox sem minnir einna helst á leikfang fyrir ómálga börn en þannig hannað að maður þarf lítið að hafa fyrir því að sortera skrúfur frá boltum. nöglum og sexköntum.
Viðeigandi hlut er einfaldlega skutlað ofaní gatið sem er sniðið eins og sá hlutur og við það rennur hann ofaní skúffu sem hægt er að opna á hliðinni. Þetta kann án efa að vekja kátínu margra en ekki en það fylgir ekki sögunni hvort Wulf hefur hug á því að koma uppfinningu sinni í framleiðslu eða ekki. En áhugasamir geta efalaust nýtt sér hugmynd Wulfs til að bæta skipulagið.




