Í gærkvöldi voru Óskarsverðlaunin veitt við hátíðlega athöfn í 82. skiptið.
Eins og alltaf voru stjörnunar klæddar í sínu fínustu kjólum, jakkafötum og var mikið spáð og spekúlerað í hverju stjörnurnar klæddust.
En eins og venja er voru það þó verðlaunin sjálf sem trekktu að og mikil spenna var í salnum. Síðustu daga hafa kvikmyndaspekúlantar margir spáð myndunum Hurt Locker og Avatar sigri. En eins og flest allir vita var James Cameron og Kathryn Bigelow gift fyrir um 20 árum en það hjónaband stóð í tvö ár.
En Sigurvegari kvöldsins var án efa með Hurt Locker með 9 tilnefningar og hlaut 6 verðlaun. En það sem stóð upp úr af öllum þessum verðlaunin er að Kathryn er fyrsti kvenkyns leikstjórinn til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir bestu leikstjórn.
Hérna má lesa um úrslit gærkvöldsins:
Besta myndin
Hurt Locker
Besti leikstjóri
Kathryn Bigelow fyrir Hurt Locker
Besti leikari í aðalhlutverki
Jeff Bridges fyrir Crazy heart
Besti leikari í aukahlutverki
Christoph Waltz fyrir Inglourius Basterds
Besta leikkona í aðalhlutverki
Sandra Bullock fyrir The blind side
Besta leikkona í aukahlutverki
Mo´nique fyrir myndina Precious
Hér má svo lesa um önnur úrslit kvöldsins.



