Tækniklárar mömmur stýra markaðnum

462% aukning tæknivæddra mæðra á samfélagsmiðlum

462% aukning tæknivæddra mæðra á samfélagsmiðlum

Í Bandaríkjunum beinist kastljósið í auknum mæli að konum, sem eru orðnar mæður og hafa til að bera lágmarkstækniþekkingu, sem kemur þeim á netið eða í símasamband við samskiptamiðla og innkaup. Þannig eru að verða til tölfræðilegar upplýsingar, sem eru líka áhugaverðar fyrir heimamarkaðinn. Í Bandaríkjunum heitir þessi neytendaflokkur „Tech-savvy-moms“ – ætli við nefnum þær ekki „tækniklárar mömmur“.

Í upphafi skal endinn skoða, segir í góðu máltæki. Og það kemur í ljós í þeim könnunum sem skilgreina hópinn „tækniklárar mömmur“ að móðurhlutverkið hefur gerbreytt innkaupavenjum þeirra. Kemur víst fáum á óvart, en alltaf gaman að fá tölur á fyrirbærið. 85% segja að mæðrahlutverkið hafi breytt innkaupahegðun þeirra og það er ekki lág tala.

Annað sem er afarspennandi þegar litið er á hegðun bandarískra tækniklárra mæðra er að samkvæmt könnun sem gerð er af BabyCenter LLC, þá hefur fjöldi mæðra sem nota samfélagsvefi reglulega aukist um 462% síðan 2006. 44% þeirra tæknikláru mæðra, sem nýta sér samfélagsvefina – nota þá til að flytja manna á milli skoðanir á vöru og þjónustu. 73% þeirra þykir að upplýsingar sem þær detta yfir á samfélagsvefjum séu áreiðanlegar og þær vilja gjarna taka þátt í smásamfélögum, sem snúast um ákveðna málaflokka eins og fjölskylduna og ákveðinn neysluvarning eða vörumerki.

Fleiri kannanir sýna okkur að 96,3% tæknikláru mæðranna nýta Facebook til að vera í tengslum við vini og fjölskyldu. En þær eru almennt jákvæðar gagnvart vitrænni markaðssetningu, sem byggir fyrst og fremst á því að hægt sé að nýta og komast yfir góðar upplýsingar um fyrirtæki og vörur á meðan þær eru á samfélagsvefjunum.

Nokkrar staðreyndir, sem vert er að hafa í huga þegar fyrirtæki vilja markaðssetja vörur og þjónustu fyrir tækniklárar mæður á Facebook – og það gildir væntanlega líka fyrir íslenskar, danskar, þýskar eða japanskar – í stórum dráttum.

75% mæðra á Facebook eru tengdar að minnsta kosti einu fyrirtæki eða vörumerki (á fan/viðskiptasíðu)
16% mæðra á Facebook fylgjast með upplýsingum frá 10 fyrirtækjum eða meira og eru tengdar þeim sem „fans“.
59.9% mæðranna þykja auglýsingar á Facebook eðlilegar en 36% er þeim mótfallnar.
Uppáhaldssíður mæðranna gefa upplýsingar um málefni fjölskyldunnar, veitingahús, afsláttarkjör, daglegar neysluvörur og skemmtanir – þar sem skemmtanir fyrir börn eru í fyrirrúmi.

Forstöðumenn kannana sem ofangreindra, slá því föstu að samfélagsmiðlar og þá sérstaklega Facebook séu góður grundvöllur til að virkja tækniklárar mæður tilfinningalega og þar með að auka sölu og vitund um vöru og þjónustu. „En það verður að gerast á þeirra forsendum. Þær eyða engum tíma í vörumerki sem skilja ekki forsendur þeirra. En þær umvefja hins vegar og hefja til vegs vörumerki, sem leika eftir þeirra eigin reglum,“ segir Kevin Burke hjá Lucid Marketing í tengslum við eina af ofangreindum könnunum.

Meira hér: http://www.marketingcharts.com/interactive/tech-savvy-moms-increase-social-media-use-by-462-9699/

Gefðu greininni einkunn

1 Stjarna2 Stjörnur3 Stjörnur4 Stjörnur5 Stjörnur (Einkunnir gefnar:3, meðaltal: 5,00 out of 5)
Loading ... Loading ...

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?