Saga Sigurðardóttir er einn fremsti íslenski tískuljósmyndari í dag en hún var á dögunum fengin til að mynda baksviðs á London Fashion Week fyrir tímaritið Dazed & Confused . Saga er búsett í Lundúnarborg og hefur verið um nokkurn tíma, ljósmyndir hennar hafa birst víða. Þann 18. mars mun hún og Hildur Björk Yeoman opna sýninguna Álagafjötrar – Garden of Enchantment í Kling og Bang. Þar munu þær ,,leiða saman hesta sína og galdra fram bæði dulúð og kyngimagnaðan heim þar sem sögum úr grískri goðafræði og rússneskum ævintýrum er stillt upp í íslensku vetrarríki“ eins og sagt er frá á bloggsíðu Sögu. Sýningin samanstendur af tískuteikningum, ljósmyndum og videoverki sem þær Hildur og Saga vinna í sameiningu undir áhrifum frá töfraheimi tískunnar. Fyrirsætur verkanna munu klæðast íslenskri fatahönnun eftir fatahönnuðina Steinunni, Thelmu-design, Spakmannsspjarir, Kalda, ELM, Hildi Yeoman og Skaparann.
Með góðfúsu leyfi frá Sögu Sigurðardóttir birtum við, í tveimur hlutum, ljósmyndir sem hún tók baksviðs á tískuvikunni í London á dögunum. Hér birtist fyrri hluti ljósmyndanna:









Bláa hárið á gaurnum er geðveikt!