Paprikukjúklingur með hækkandi sól

Guðrún Ögmundsdóttir matgæðingur

Guðrún Ögmundsdóttir matgæðingur

Góðan og blessaðan daginn

Þá er febrúar farinn, sól hækkar enn á lofti og einhvern veginn er eins og vorið liggi í leyni og bíði eftir okkur.  Ég er samt ekki að fara að koma með grilluppskrift strax ef þið hélduð það!

Ég ætla að deila með ykkur afar gómsætum kjúklingarétti, og að vísu gerði ég hana eitt sinn fyrir Gestgjafann, en það eru örugglega allir búnir að gleyma því fyrir lifandi löngu.  En hún er svona:

Paprikukjúklingur

1 kjúklingur – brytjaður niður (eða kjúklingabitar í pakka)
gott paprikuduft
10 skarlottulaukar
5 hvítlauksrif
salt/pipar/aromat
1 dós sýrður rjómi
1 teningur kjúklingakraftur og 1 glas vatn
Steinselja – sett um leið og borið er fram

Kjúklingabitunum er velt upp úr paprikuduftinu, þar til hann er allur þakinn dufti. Einnig sett aromat (e.salt) og pipar.
Steikt í smjörva, og bitarnir síðan settir til hliðar.
Laukurinn og hvítlaukurinn, eru skornir smátt og steiktur síðan á pönnunni og eflaust þarf að bæta við smjörva og næst er kjúklingakrafti sem búið er að leysa upp í vatni hellt við og soðið vel uppá pönnunni (þar býr krafturinn).

Kjúklingabitarnir eru settir aftur á pönnuna/ eða allt sett í pott,  og látið malla í 45 mínútur. Sýrða rjómanum er bætt út í og ef þið viljið þykkja sósuna má nota sósuþykkni.

Saxaðri steinselju er stráð yfir þegar er borið fram

Með þessu hef ég hasselback kartöflur,sem ég hef áður sagt ykkur frá, en það má líka hafa hrísgrjón.

Fallegt, einfalt og  grænt salat sómir sér vel með þessum rétti.  Þessi réttur svíkur ekki, ég lofa því.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?