
Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðakona og bloggari á Miðjunni
Vera Sölvadóttir leikstjóri, tónlistarkona, bloggari, framleiðandi, handritshöfundur og þúsundþjalasmiður gerði nýverið heimildamyndina Burkino Faso 8600 km ásamt félaga sínum Þorsteini Joð. Myndin hefur vakið töluverða athygli en hún hefur verið frumsýningu á netinu síðustu daga. Vera sem jafnframt er bloggari hér á Miðjunni segir í viðtali við Miðjuna frá aðdraganda myndarinnar Burkino Faso 8600 km, hvað sé framundan og frá þeim mörgu hlutverkum sem framleiðendur kvikmynda á Íslandi þurfa að vera tilbúnir að fara í svo dæmið gangi upp.
Þessa dagana er Vera að vinna að sinni fyrstu mynd í fullri lengd sem hún segir vera ,,bæði spennandi og sársaukafullt að sjá hugarfóstur manns taka á sig mynd sem gæti hugsanlega orðið að veruleika á hvíta tjaldinu. Það er mun persónulegra en ég hefði getað ímyndað mér.“
Vera segir aðdragandan að því að hún fór að vinna með Þorsteini ekki hafa verið langan ,,Þorsteinn hringdi í mig eftir ábendingu frá Ívari félaga sínum sem fór með okkur í ferðina. Við höfðum ekki undirbúið tökurnar sérlega vel þar sem þetta var tækifæri þar sem spurningin var að hrökkva eða stökkva. Svo við lögðum af stað út í óvissuna en það kom fljótt í ljós um hvað við vildum að myndin fjallaði“. Myndin Burkina Faso 8600 km er heimildamynd sem fjallar um trúboða frá Íslandi sem leita leiða til að fjármagna áfram skólastarf á vegum ABC barnahjálpar eftir að kreppan er skollin á á Íslandi. ,,Þetta er ferðasaga fólks sem vill keyra 8600 kílómetra til vestur Afríku, til að leggja sitt að mörkum til hjálparstarfs, þar sem neyðin er mest, og lætur ekki erfiðleika umhverfi síns stoppa sig. Þetta er mynd um lausnir á tímum kreppunnar.“ segir Vera sem segir þau Þorstein hafa bæði orðið hugfangin af þeim hjónum, Hinrik og Gullý . Ferðalagið og eftirvinnsla myndarinnar hafi tekið heilt ár og hún hafi lært ómetnalega mikið á þessum tima. ,,Ég held að við á Íslandi getum lært ýmislegt af afstöðunni sem þau hjón hafa til lífsins. Því eins og Hinrik segir sjálfur í myndinni: „Það verður að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft, annars hjakkar allt í sama farinu“".
Hluti af vegferð hjónanna í myndinni var að selja jeppa sem þau keyrðu á alla 8600 kilometrana og ágóðinn af honum var ætlaður uppbyggingastarfinu. Þegar myndinni líkur er jeppinn óseldur, en hvernig gengur í Burkino Faso núna?
,,Það gekk á endanum að selja jeppann. Hann hafði legið á sölu í höfuðborg Burkina Faso, Ouagadougou, í næstum ár þegar loks kom kaupandi. Honum hafði reyndar verið stolið í millitíðinni og fannst aftur á landamærum Mali. Þar hljóp ræninginn út úr bílnum eftir að hafa verið stoppaður af landamæralöggum og hvarf inn í skóginn með lyklana. það var fyrir bestu að bílnum hefði verið stolið eftir allt saman þar sem að það höfðu orðið flóð í Ouagadougou í og bílarnir sem voru á bílasölunni skemmdust allir. Svo þetta var á endanum lán í óláni. Takmarkið náðist því á endanum og það tókst að fjármagna eitt ár til viðbótar í skólanum þeirra í Bobo Dioulasso fyrir vikið. Það má vera að þetta hljómi eins og sápuópera en svoleiðis var allt ferðalagið í mínum huga.“
Eins og flestir þekkja þá hefur staðið yfir hörð deila kvikmyndagerðarfólks og yfirstjórnar Ríkisútvarpsins og ríkistjórnarinnar vegna niðurskurð sem fyrirhugaður er á kaupum á innlendu dagskrágerðarefni hjá Rúv. Vera og Þorsteinn ákváðu að sýna myndina ókeypis á netinu sem þau fá ekkert greitt fyrir. Af hverju völdu þið þá leið?
,,Okkur fannst það eiga við. Þetta er mynd sem við þurfum inn í umræðuna. Mynd sem fjallar um lausnir og sem við þurfum að sjá núna. Það er svo þreytandi að heyra endalaust neikvæðni í fjölmiðlum og fréttir af vonleysi. Það er partur af uppbyggingunni að benda fólki á að við höfum það ekki svo skítt. Við verðum að koma auga á það góða og hætta að sökkva okkur í það sem miður fer. Það er svo auðvelt að falla í þá gryfju. Netið er miðill sem nær til breiðs hóps. Við útilokum ekki að hún verði í sjónvarpinu þegar tímar líða. Okkur fannst hinsvegar ekki gott að bíða með þetta efni.“
Það er nóg að gera hjá Veru þessa daganna sem kennir öllu jafnan í Kvikmyndaskólaunum á leikstjórnar- og framleiðslusviði auk þess sem hún tekur að sér hin fjölbreyttustu verkefni. ,,Ég er að klára stuttmynd sem ég tók upp á síðasta ári. Hana geri ég með góðum vinum mínum, framleiði hana, leikstýri og leik sjálf í henni. Það er eina lausnin ef maður vill láta hlutina gerast. Ég fékk til mín fullt af frábæru fólki sem verið svo gott að leggja tíma sinn og vinnu í að hjálpa mér að koma þessu af stað. Ég er að kenna í kvikmyndaskólanum á leikstjórnar- og frameiðslusviði. Svo er að klárast póstkortasýning sem ég setti upp í samstarfi við Jarþrúði Karlsdóttur tónlistarkonu í Þjóðmenningarhúsinu. Ég hvet sem flesta að kíkja á hana áður en yfir lýkur.“