Reykjavík Fashion Festival – upphitun

Reykjavík Fashion Festival eða RFF eins og það virðist styttast í verður haldin hátískulega 18.-21. mars í fyrsta skipti. Svar framúrskarandi íslenskra og Íslandstengdra fatahönnuða við hinu sögulega stórforkastanlega fyrirbæri Iceland Fashion Week sem við munum vonandi ekki heyra né sjá meira af. Hér er kominn vettvangur fyrir hæfileikaríkt fólk á heimsmælikvarða að sýna getu sína.

Mér datt í hug í smá svona undirbúningsfíling að kynna hönnuðina aðeins fyrir fólki. Sér í lagi þar sem íslensk fatahönnun er búin að vera á blússandi farti undanfarið og nýtt fólk og fyrirtæki að bætast við í lestina að því er virðist í hverjum mánuði. (Ég missi reyndar af þessu og græt það sárt, en ég verð viðstödd í anda!)

Samkvæmt mínum heimildum eru þetta hönnuðurnir sem valdir voru til að taka þátt í fyrstu RFF:

E-Label
Ásta Kristjánsdóttir, eða Ásta í Eskimo, er frömuður þessa fyrirtækis ásamt Hebu Raftery en hönnunin hefur verið í höndum Ásgríms Más Friðrikssonar. Áhersla fyrirtækisins er á frekar einfaldar en klæðilegar flíkur í svörtum bómullarefnum nær engöngu þar sem sniðið hefur allt að segja. E-label var upphaflega einungis fáanlegt á netinu en er nú líka með verslun á Laugaveginum.
http://www.shopelabel.com

20634_280298304253_28733414253_4437570_3771700_n

ELM
…er „Hannað af konum fyrir konur.“ Stofnað af þremur vinkonum árið 1999, Ernu Steinu Guðmundsdóttur, Lísbeti Sveinsdóttur og Matthildi Halldórsdóttur, byrjaði ELM (búið til úr upphafstöfum þeirra vinkvenna) sem prjónahönnunarfyrirtæki en hefur vaxið mikið undanfarinn áratug og er nú til sölu í fjölmörgum löndum. ELM hefur óneitanlega sinn einkennandi stíl og alltaf unun að koma við efnin hjá þeim.
http://www.elm.is/

Picture 3 copy

Emami
Þetta byrjaði allt með undrakjólnum sem alla dreymir um að eiga í hanskahólfinu, svona til vara fyrir hverskyns uppákomur. En nú eftir allrosalega byrjun er þetta fyrirtæki sem er í eigu Brynjars Ingólfssonar komið með línu af allskyns margbreytilegum fatnaði í orðsins fyllstu merkingu.
http://www.emami.dk

16459_198535914807_24382234807_3927082_7553566_n

Anderson & Lauth
Er endurvakning á gömlu íslensku merki og er því eldra en Lýðveldið Ísland sjálft. Flestir ættu að þekkja þetta merki enda með nokkrar búðir á landinu og hefur auk þess verið farsælt erlendis. Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir hafa skapað mjög ákveðið rómantískt lúkk sem sem nú æpir Andersen & Lauth hvar sem er.
http://www.andersenlauth.com/

Picture 13 copy

Mundi
Grafískur hönnuður sem sá ljósið í fatahönnun. Hann byrjaði á að einbeita sér að prjóni með skemmtilegum munstrum en hefur svo þróað línuna út í önnur efni.
http://www.mundivondi.net/

22148_314123696217_117556816217_4070679_4921871_n

Thelma
Höfuðskraut í formi spanga. Hvern hefði grunað að höfuðskraut hefðu að geyma þennan undraheim sem hún hefur skapað. Thelma Björk Jónsdóttir útskrifaðist úr fatahönnun frá Listaháskóla Íslands en hefur einnig diplóma í útsaumi frá hinum franska hátískuskóla Ecole LESAGE.
http://www.thelma-design.com/

AW907

Kron by Kronkron
…er skólína fyrir konur úr smiðju tískuparsins Hugrúnar Árnadóttur og Magna Þorsteinssonar, oftast kennd við verslun sína Kronkron (og Magni stundum við hárgreiðslustofuna Rauðhettu og úlfinn). Tvær línur hafa litið dagsins ljós og eru skórnir vægast sagt skrautlegir, litaglaðir og hressandi.
http://kronbykronkron.com/

4190128760_957a35c98d

Kalda
Katrín Alda Rafnsdóttir hannar undir þessu merki en hún er kannski frekar þekkt sem önnur Einveru-systra sem rekið hafa búðina Einveru á Laugaveginum nokkur misseri. Oft er að finna ólíklegustu efni á flíkum Katrínar, svosem hár og fjaðrir.
http://www.facebook.com/search/?q=Einvera&init=quick#!/pages/Reykjavik-Iceland/Einvera/84976291739

5292_107147321739_84976291739_2054937_3820735_n

Nikita
…er barn Heidu Birgisdóttur en því var ýtt úr vör árið 2000 og hefur stækkað síðan og er nú eitt af stærstu íslensku tískufyrirtækjunum. Fötin eru hress og afslöppuð í götu/brettastíl en á fjölmörgum stöðum má sjá límmiða með slógani Nikita: „For girls who ride“. Flott munstur og litir í þægilegum og mjög klæðilegum sniðum fyrir bæði kynin.
http://www.nikitaclothing.com

____gallery__streetwearw09__D1010508 Day Tripper dress P1010412A Isobel jeans honey A1011309 Motion bag

Bóas Kristjánsson
Ferskur karlatískuhönnuður, einn af fáum hér á listanum. Til gamans má geta þess að um stund var Bóas í læri hjá Sruli Recht sem einnig er hér á listanum.
http://www.kristjansson-boas.com

15_boas-012855-2screen-800-100ppi

Birna
Birna Karen Einarsdottir stofnaði Birnu árið 2002 sem hefur haft aðalaðsetur í Kaupmannahöfn en er einnig með búð í miðbæ Reykjavíkur. Stíllinn er því kannski ögn skandinavískari en við eigum að venjast en hefur sett sinn svip á fataskáp íslenskra kvenna undanfarið.
http://www.birna.net

960x500-ffffff-2

Blik
Prjónalína Laufeyjar Jónsdóttur fyrir fyrirtækið Glófa en fyrsta línan sem varð að veruleika 2010 er byggð á þjóðsögunni um Þóruhólma og inniheldur munstur og vísanir í alltumlykjandi sjóinn okkar og fiskveiðar. Fyrir línuna hlaut Laufey verðlaun frá Hönnunarmiðstöðinni og Útflutningsráði.
http://www.varmadesign.is

6a111a824552888

Royal Extreme
Una Hlín Kristjánsdóttir er aðalpían í Royal Extreme sem hefur „More is more, less is a bore“ sem sitt mottó. Silkisokkar, kögur og ullardúskar í rómantískum litum en Una hefur meðal annars unnið fyrir Andersen & Lauth.
http://beroyalextreme.com/
19060_316071311965_316027626965_3567477_1242814_n

Spaksmannsspjarir
…þekkja nú flestir enda hefur hönnun þeirra verið bæði á síðum fjölmargra tímarita en einnig á líkömum þjóðþekktra einstaklinga síðan 1993. Hér er litapalleta íslenskrar náttúru í fyrirrúmi ásamt frumlegum sniðum.
http://www.spaksmannsspjarir.is/

13769_198689907617_95062957617_3034291_8202669_n-1

Sonja Bent

…hefur eins og fleiri einbeitt sér að prjóninu og meðal annars gert dálítið af karlmannafatnaði, svosem skyrtur og slaufur. Hún er nú hluti af Kirsuberjatrésteyminu en hún rak meðal annarra Comme des Garcons Guerrilla Store sem auðgaði mjög tískusenuna í Reykjavíkurborg.
http://www.kirs.is/art_work/sonjabent/sonjabent.html

Picture 14 copy

Lúka
Lúka Art & Design var stofnað í janúar 2009 af tvíburasystrunum Gunnhildi og Brynhildi Þórðardætrum en þær hafa einbeitt sér að litríkum prjónamynstrum.
http://www.lukaartdesign.is

08bbb4e9fe09005b5169dcc805b0c3dc

Farmer´s Market
…eiga allir að þekkja en það er örugglega alls ekki raunin. Peysurnar sem Íslenskar ömmur og kannski einstaka afi hafa prjónað á ættina svo lengi sem menn nuna hafa verið spunnar inn í 21. öldina. Farmer´s Market var stofnað 2005 af Bergþóru Guðnadóttur og tónlistarmanninum Jóel Pálssyni en þau hafa haldið sig aðeins nær ullararfinum okkar en aðrir hönnuðir hér sem vinna með prjón.
http://www.farmersmarket.is/

Picture 10 copy

GuSt
…er eitt af þessum íslensku tískuhúsum sem mér finnst vera búið að vera til alla mína ævi sem er langt frá því að vera rétt en það var stofnað 1997 af Guðrúnu Kristínu Sveinbjörnsdóttur. Samt sem áður þýðir það að það er eitt af gamalgrónari nöfnunum hérna á listanum.
http://gust.is/

mynd2

GoWithJan
Guðjón Tryggvason handgerir fagurmunstraðar slaufur og litríka og oft kögraða klúta á þá sem þora að vera með. Hann eins og svo margir aðrir hér er runninn undan rifjum Listaháskólans og auðvitað lífsins.
http://www.gowithjan.com/

gudjon2-348x492

Sruli Recht
…virðist leggja hönnunarhendur á hvað sem honum kemur til hugar. Þar á meðal má nefna ísbjarnarteppi, borð úr pappakössum, skó og skartgripi. Upprunalega frá Ísrael og margar sögur ganga um hvernig hann endaði hér, ekki ætla ég að segja til um hvað er satt eða ósatt en hann hefur óneitanlega sett svip sinn á Reykjavíkurborg undanfarin ár. Hann rekur nú Vopnabúrið ásamt Megan Herbert úti á Granda.
http://www.srulirecht.com/

5409_129454897185_129203322185_3040975_1285017_n

Áróra
Hönnun Áróru Eirar Traustadóttur hefur prýtt ófáa hálsana en aðalsmerki hennar eru kragar sem bjóða rómantíkinni heim. Mamma á einn sem hún skilur helst ekki við sig og sver að hann hafi bjargað sér frá lugnabólu á köldum Utrecht-vetri í fyrra. Ég hugsa að hann hafi frekar bjargað kúlinu hennar.
http://aroradesign.net

kragi_index

Hildur Yoeman
Hildur hefur byggt sér upp gott orðspor sem tískuteiknari enda með skemmtilegan og einkennandi stíl. Hún á meðal annars heiðurinn af teikningunum sem prýða kynningarefni Thelmu. Hildur er hinsvegar menntaður fatahönnuður og hefur síður en svo lagt hönnunina á hilluna.
http://www.hilduryeoman.com/

hlyrabolur
Gaman er að sjá að mikill fjöldi þessa fólks sleit hönnunarskónum í Listaháskóla Íslands en alls ekki allir enda mikilvægt að það sé smá bland í poka. Einnig eru hér komnir nokkrir hönnuðir sem vinna með prjón sem er kannski okkar mesta arfleifð þegar að klæðnaði kemur en Mundi, Blik, Sonja Bent, Lúka og Farmer´s Market hafa það öll að aðalsmerki. Samt sem áður er hér samansafn ólíkra hönnuða og jafnvel kynslóða en það rann upp fyrir mér að eitt eiga þau öll sameiginlegt og það er gæðalegt efnaval. Náttúruefnin ráða hér ríkjum! Kannski er það kuldinn sem gerir okkur fráhverf akríl og pólýester eða formæður og forfeður okkar hafa þróað með sér einhverskonar náttúruefnagen. Ég er ekki viss en vil hrósa þeim öllum fyrir þetta. Eftir 50 ár verður ennþá hægt að finna þessi föt í Kolaportinu á meðan Zara og Karen Millen liggja í landfyllingum!

Að lokum viðurkenni ég hér með samviskulausan stuld mynda af Facebook- og heimasíðum hönnuða í trausti þess að augljóst sé að það sé gert til að sýna fram á snilli þeirra. Svo fylgja tenglar með á allar þessar síður og hægt að kynna sér þar myndakredit ef svo ber við.

Handbolti hvað? Tékkið á þessu!

Gefðu greininni einkunn

1 Stjarna2 Stjörnur3 Stjörnur4 Stjörnur5 Stjörnur (Einkunnir gefnar:8, meðaltal: 5,00 out of 5)
Loading ... Loading ...

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?