Helgina 19 – 20 mars verður haldin í fyrsta sinn Reykjavík Fashion Festival sem er einskonar ,,tískuvika“ eins og víða erlendis nema haldin um helgi. Miðjan sagði frá hátíðinni fyrir skemmstu og má lesa nánar um það hér. Nú hefur hins vegar verið bætt við tískuviðburðinn sérstakri tónlistarhátíð sem fer fram samhliða tískuhelginni. Í tilkynningu frá stjórnendum hátíðarinnar verður tónlistarkonan Peaches sem gaf nýlega út breiðskífuna I Feel Cream, Gus Gus, Air Frans, Ladytron, Sykur, Bloodgroup og Retro Stefson meðal þeirra sem troða upp á NASA en þar fer tónlistarveislan fram.
Tískuhátíðin verður hins vegar haldin í húsi O. Johnson & Kaaber en þar munu margir bestu fatahönnuða landsins sýna sína hönnun.
Hægt er að kaupa miða á tónleikadagskrá hátíðarinnar á midi.is.


