Ný heimildarmynd eftir götulistamanninn Banksy – myndband

Veggjastensl eftir Banksy

Veggjastensl eftir Banksy

Nýverið var frumsýnt á kvikmyndahátíð í Evrópu heimildarmynd eftir huldumaðurinn Banksy sem er einn þekktasti grafitílistamaður heimsins fyrir myndir sínar sem má finna víðs vegar um heiminn á veggjum húsa sem máluð eru án leyfis eigenda fasteignanna.   Banksy er talinn vera frá Yate sem er í nágrenni við Bristol í Bretlandi og vera fæddur árið 1972 en fátt annað er vitað um listamanninn sem fer að næturlagi og málar verk sín.  Í verkum hans má oftast finna ádeilu á stjórnmál, menningu eða siðferði í samfélaginu. Myndir af verkum Banksy verið gefnar út í bókum sem hafa selst gífurlega vel og einnig hafa áhrif af verkum hans gætt víða.

banksy 355px-Banksy-ps



Heimildamyndin ,,Exit Through The Gift Shop“ er sögð vera fyrsta myndin um ,,götulista hörmungar“  og verður frumsýnd 5. mars í Bretlandi – ekki er vitað hvort myndin fari í sýningu hér á landi en hér neðar má horfa á sýnishorn úr myndinni og hér má sjá viðtal við Banksy á Guardian.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?