Á laugardag reið yfir Chile jarðskjálfti sem mældist allt að 8,8 á Ricter skalanum. Talið eru að hundruðir hafi látist og er eyðilegging mikil. Fjöldi fólks um allan heim leitar nú upplýsinga af afdrifum chilebúa og vina og vandamanna sem voru í Chile þegar skjálftinn reið yfir. Fjölmiðlar, samfélagsvefir, borgarlegir fjölmiðlar og nú síðast fyrirtækið Google lagt sitt af mörkunum til að miðla upplýsingum og með nýrri tækni streyma upplýsingar um internetið á óhefðbundnari hátt en oft áður.
Í dag, sunnudag ákvað Google að leggja sína sérþekkingu að mörkum til að auðvelda fólki að finna hvort annað. Google bíður nú upp á sérstakan vef sem hjálpar fólki sem er á skjálftasvæðinu að láta vita af sér og þeim sem leita af fólki sem voru í Chile þegar skjálftinn reið yfir að kanna hvort fólk hafi gefið sig fram og að það sé verið að leita af því.
Vefmiðilinn iReport sem starfar í sama anda og Miðjan, þar sem fólki gefst kostur á að senda inn greinar, fréttir og myndbönd hefur opnað sérstaka síðu þar sem hægt er að skoða myndbönd og fréttaskot frá almenningi sem er í Chile. Hægt er að skoða iReport á vefsíðu CNN sem birtir reglulega fréttaskot frá borgarblaðamönnum hjá iReport.
Þá hefur CNN opnað sérstaka Twittersíðu sem heldur utan um upplýsingar frá fjöldafólks sem tengjast jarðskjálftunum og mögulegri flóðbylgju sem hætta var talin á eftir skjálftann á laugardag.
Hér má horfa á ríkissjónvarpið í Chile og fylgjast með fréttum í beinni útsendingu.
Hér má svo horfa á aðra sjónvarpsstöðvar frá Chile.
Hér má finna sjónvarpsstöð á netinu sem fylgist með hættunni á flóðbylgjum víðsvegar um heiminn:

