Jesse Schell er einn leiðandi hugsuða heims á sviði leikjahönnunar. Jesse er höfundur bókarinnar „The Art of Game Design“ sem þykir ein gagnlegasta bók um leikjahönnun í dag. Hann er prófessor við Carnagie Mellon háskóla og flutti nýlega áhugaverðan fyrirlestur á DICE hönnunarráðstefnunni í Las Vegas. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig Facebook kom leikjahönnuðum heimsins á óvart, hvernig leikir eru farnir að tengjast raunveruleikanum sterkari böndum í dag og að lokum hvernig leikjahönnun getur hjálpað og breytt alls konar hversdagslegum hlutum, eins og til dæmis tannburstun. Upptökur af fyrirlestrinum hafa farið eins og eldur í sinu um netið og hafa vakið miklar umræður í leikjahönnunarbransanum.


