Einfalt, einfalt…
Ég er nú ein af þeim sem er ekkert sérlega góð í eftirréttum, enda ekki mikil sætindakellling. Þess vegna finnst mér alveg frábært þegar eitthvað einfalt og „sneddý“ dettur á mig og þá nota ég það óspart, tjútta það til breyti og bæti. Ég vil endilega miðla þessu áfram og veit að það mun gagnast best fyrir þá sem standa í sama vanda og ég þegar eftirréttir eru annars vegar
Hér koma tveir litlir eftirréttir, sem er samt fyrir marga.
Ávextir og marens
1 marensbotn
ávextir eftir smekk, bara það sem til er (epli, perur, bananar, öll heimsins ber og svo framvegis)
1 peli rjómi
súkkulaðisósa í flösku – einhver góð íssósa hentar ágætlega
Byrja á því að brytja ávextina miður í frekar litla bita og setja í fallega skál. Síðan er rjóminn þeyttur og settur yfir, þá er marensinn mulinn og settur yfir og lokst er súkkulaðisósunni sprautað fallega yfir herlegheitin. Það má bæta því við að sumir nota kókosbollur (kramdar) í staðinn fyrir rjómann, það er líka gott!
Og svo er eplakaka.
4-5 epli
makkarónukökur
kanilsykur
smjörvi
Eplin eru skræld og skorin í bita. Sett í smurt eldfast mót. Kanilsykri stráð yfir. Makkarónukökur (ég er oftast með þessar stóru dönsku sem fást í Bónus og víðar) þær eru muldar og stráð yfir eplin, þannig að þær hylji þau allveg. Aftur er stáð kanilsykri yfir. Smjörvaklípum dreift hér og þar yfir fatið.
Þetta er bakað í ofni við 180 gráður í svona 20-30 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða ís. Og auðvitað má skipta út eplum fyrir rabbabara eða eitthvað annað sem hugurinn girnist. En sem sagt gasalega gott og einfalt
Njótið helgarinnar!
Guðrún Ögmunds


