Bestu leikrit Egners koma út í safnkassa

ranatilbLeikrit allra barna, Kardimommubærinn, Karíus og Baktus, Dýrin í Hálsaskógi og Síglaðir söngvarar, eftir Thorbjörn Egner, koma út í safnkassa þann 2. mars næstkomandi.

Allir kannast við gömlu góðu upptökurnar og segja má að þær hafi verið með vinsælustu plötum íslenskrar útgáfusögu. Í fréttatilkynningu segir að þessar fjórar plötur hafi samtals selst í rúmlega 100.000 eintökum. Kardimömmubærin og Dýrin í Hálsaskógi seldust sérstaklega vel enda fjöldi íslendinga sem eiga kærar minningar tengdar hlustum á þessum stórgóðu leikritum.

Höfundur verkanna, Thorbjörn Egner, fæddist í Osló árið 1912 en hann starfi meðal annars við myndskreytingar áður en hann fór að semja og myndskreyta sögur fyrir krakka. Hann varð þjóðkunnur maður í heimalandi sínu fyrir verk sín en verk hans og persónur hafa notið mikilla vinsælda víða, sérstaklega á Norðulöndunum.

1 svar við Bestu leikrit Egners koma út í safnkassa

  1. 26/02/2010 at 19:14 | Permalink

    Fæddist Thorbjörn Egner ekki 1912, frekar en 1012?

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?