Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík á vordögum, 19. – 25. apríl en sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 22. apríl. Hátíðin er hugsuð fyrir öll börn á leik- og grunnskólaaldri og fer hún fram víðsvegar um borgina. Á hátíðinni verður fjallað um menningu barna, menningu með og fyrir börn. Fjölbreytt menning tengd mat, fyrirlestrum, íþróttum, inniveru, leiklist, listum og ýmsu öðru verður í boði – allt tengt börnum. Þema hátíðarinnar er forvitni.
Höfuðborgarstofa segir í tilkynningu að allir sem hafi áhuga á að efla barnamenningu að vera með en hægt er að sækja um aðstoð til framkvæmda verkefna. Stefnt er að því að hátíðin verði byggð upp á mörgum smáum viðburðum sem krefjast þátttöku gesta og eru helst með ókeypis aðgangi. Tekið er á móti umsóknum til loka febrúar en allar nánari upplýsingar má nálgast hér.


