Afsökun fyrir því að vera alltaf heima á kvöldin

Gudmundur_Oskarsson_20101802_JMSGuðmundur Óskarsson rithöfundur og bankastarfsmaður hlaut nýverið íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Bankster sem fjallar um hugarfars- og lífstílskreppu bankamanns sem missir vinnuna sökum efnahagsástands landsins. Miðjan ræddi við Guðmund og spurði hann spjörunum úr.

Hverjir eru fjölskylduhagir þínir? Ég á tvö sett af ömmu og afa, foreldra, þrjú yngri systkini, frændur og frænkur í bunkum en hvorki kærustu né barn.

Við hvað starfar þú í bankanum? Fótgönguliði á skrifstofu.

Hvaða aðra bækur hefurðu skrifað? Vaxandi nánd – orðhviður (ör- og smásögur). Hún kom út árið 2007 hjá Nykri. Hola í lífi fyrrverandi golfara, skáldsaga sem kom út hjá Ormstungu 2008.

Lestu gagnrýni um bókina og tekurðu hana nærri þér? Ég fór frekar seint að láta frá mér efni. Þegar ég gerði það loks hafði ég sætt mig við að útgefið verk er allt nema einkamál höfundar. Samt gúgla ég mig aldrei, ekki heldur bækurnar. Ég frétti annað slagið af umfjöllunum og kynni mér gagnrýni ákveðinna aðila. Það er alls ekki óhollt, held ég, má alveg læra og átta sig betur á sjálfum sér. Hvað varðar neikvæð viðbrögð, þá er sálarlíf mitt allt með frekar hefðbundnum hætti: Mér finnst ánægjulegt þegar brugðist er vel við verkum mínum en leiðinlegt (í smástund) þegar viðbrögðin eru neikvæð.

Verður framhald af Bankster? Ég efast um það af fullum þunga.

Af núlifandi íslenskum höfundum hverja heldurðu upp á? Úbs! Nú stefnir í aumingjalegt svar. Ég á marga uppáhalds, höfundar þurfa ekki að vera gróðursetnir til að ég kunni að meta þá. En þessa lifandi höfunda held ég upp á af ýmsum og ólíkum ástæðum. Ég þekki þá marga, þekki hvernig þeir nálgast rithöfundarstarfið, hugmyndir þeirra um skáldskap og svo auðvitað verkin – eða nei, þetta svar fær ekki að verða aumingjalegt. Um daginn las ég Blysfarir eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur í x-ta skipti. Verkið skítfellur að mínum smekk og fyrir það verður skáldkonan alltaf í sérstöku uppáhaldi.

Hvaða þýðingu hafa Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þig? Nú get ég hætt að útskýra og afsaka hvað ég hef verið að gera einn á kvöldin heima hjá mér undanfarin ár.

Kvíður þú fyrir væntingum í tengslum við næstu bók? Að standa undir væntingum sem fylgja Íslensku bókmenntaverðlaununum er munaðaráskorun. Ég ætla einfaldlega að sinna næstu hugmynd eins vel og ég get. Þótt hún eigi eldri systur, sem stendur sig ofsalega vel, þá fær hún að verða til og koma út á eigin forsendum.

Hvernig hafa viðbrögð samstarfsmanna þinna verið við bókinni? Jákvæð. Ég efast samt um að öllum hafi þótt hún skemmtileg, en eins og við vitum þá hentar skemmtilegt-leiðinlegt-kvarðinn betur til að meta gæði bókmennta en rússíbana – nei, sorrí – meta gæði rússíbana en bókmennta.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?