Reykjavík Fashion Festival: Stökkpallur fyrir fatahönnuði

Thelma_Bjork_20102202_JMSTískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival verður haldin 19. og 20. mars í gömlu kaffiverksmiðju Ó.Johnson & Kaaber við Sætún í Reykjavík. Þá mun Fatahönnunarfélag Íslands sjá um sýningarbása í Hafnarhúsinu 21. mars. Alls hafa 22 hönnuðir verið valdir til að sýna á hönnun sína. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin. Thelma Björk kemur að skipulagningu hátíðarinnar og sýnir sína hönnun. „Það er allt í fullum gangi. Ég er að klára „prótótýpur“ og setja saman mína sýningu. Nú vinna allir hönnuðirnir í sínu horni, leggja lokahönd á línurnar og setja upp góða sýningu. Þetta er roslega skemmtilegt og fallegt. Allir hjálpa öllum, allir vinna meira og minna ókeypis, allir leggjast á eitt. Það er jákvæður kraftur í þessu,“ segir Thelma Björk.

Hún segir að báða dagana verði stanslaus dagskrá. „Það verða tískusýningar þar sem hver og einn hönnuður fær frelsi til að gera það sem hann vill, það verður mjög áberandi hver er með hvað. Ef að áhorfendur sjá eitthvað athyglisvert sem þeir vilja skoða nánar er sýningarherbergi í kjallaranum, svokallað „showcase“ og þar getur fólk farið og fengið betri innsýn inn í hönnunina og hvað hönnuðurinn er að hugsa. Þarna fá allir beint samband við hönnuðinn og ef að þú fellur algerlega fyrir einhverju getur lagt inn pöntun.“

Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin en Thelma segir að hún hafi fengið töluverða athygli erlendis frá. „Við sem stöndum að þessu höfum byggt upp gott tengslanet við erlenda fjölmiðla. Það er mikið um að vera, ljósmyndarar taka myndir, verið að gera heimildamynd um hátíðina og pressuupplýsingar sendar út um hátíðina og um hönnuðina sem á henni verða. Þetta er því góður vettvangur til að vera sýnilegur, stökkpallur til að fara lengra með sína vöru.“

Stefnt er að því að hátíðin verði árlegur viðburður. „Við sjáum fyrir okkur að þetta verði fastur liður tvisvar á ári,“ segir Thelma Björk. „Þá er sýnt sumar og vor tískan og haust og vetur.“

Til að hita upp fyrir hátíðina hafa nokkrir hönnuðir á hátíðinni farið í samstarf við Rauða krossinn og sjá um útstillingar í glugga Rauða kross búðarinnar á Laugarvegi fram að hátíðinni. Sýningin kallast ,,Komdu og skoðaðu í kistuna mína“.

Thelma Björk ríður á vaðið og verður hennar útstilling til sýnis út vikuna. „Ég hanna mest hatta og höfuðföt. Því vildi ég hafa mína útstillingu sem óð til hattabúðarinnar. Ég er svo sorgmædd yfir því að það sé ekki hattabúð í Reykjavík. Ég fann hatta í Rauða Kross búðinni og nokkra sem ég á sjálf og vann útstillinguna í kringum það.“ Útstilling Thelmu hefur nú þegar vakið tölverða athygli og hafa nokkrir hattar verið teknir frá. Thelma segir útstillingar í búðum skipta gríðarmiklu máli. „Þetta er nokkurs konar búðasálfræði. Þú vilt ná kúnnanum inn og láta honum líða vel. Þetta eru miklar pælingar sem liggja þarna að baki.“

Útstilling Thelmu í Rauða kross búðinni Laugarveg

Útstilling Thelmu í Rauða kross búðinni Laugarveg

Næstu vikur verða það svo hönnuðurnir í Nikita, Birna, E-Label og Mundi sem sjá um útstillingar í Rauða Kross búðinni.

Hægt er að nálgast upplýsingar um Reykjavík Fashion Festival hér.

1 svar við Reykjavík Fashion Festival: Stökkpallur fyrir fatahönnuði

  1. Ingvar Högni's Gravatar Ingvar Högni
    22/02/2010 at 17:11 | Permalink

    Neðri ljósmyndin er eftir Ingvar Högna Ragnarsson.

  1. By on 03/03/2010 at 11:14

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?