Í New York Times segir frá grein sem birtist í vísindatímarinu Nature og fjallar um að erfðamengi fimm Afríkumanna hafi verið lýst til fullnustu með raðgreiningu. Fjórir þeirra eru búskmenn sem heita !Gubi, G/aq’o, D#kgao og !Ai en táknin merkja ólík smellihljóð í tungumálum búskmanna. Fimmti maðurinn er erkibiskupinn Desmond Tutu, sem var meðal annars valinn vegna þess að foreldrar hans eru úr tveimur fjölmennustu bantú-þjóðflokkum Suður-Afríku.
Erfðamengi Afríkumanna er sérstaklega áhugavert vegna breytileika þess. Menn utan Afríku eiga rætur að rekja til lítils hóps manna sem fór frá Afríku fyrir um fimmtíu þúsund árum og bar aðeins með sér lítinn hluta erfðabreytileikans.
Meðal þess sem kom í ljós er að búskmenn eru með sérstök genaafbrigði sem tengjast sjón-, lyktar- og heyrnarskynjun en slík skynjun gæti verið sérlega mikilvæg hjá veiðimannaþjóðum. Þess er vænst að rannsóknirnar nýtist við leit að afbrigðum gena sem valda sjúkdómum.


