Jóga gegn kvíða

Joga_20100701_JMS

Eins og ég hef áður sagt í mínum fyrsta pistli að þá er jóga dýrmæt gjöf sem við getum nýtt okkur á svo marga vegu í okkar daglega lífi. Jóga er meðal annars verkfæri sem við getum notað gegn kvíða og depurð. Í þessum pistli mun ég leggja áherslu á jóga gegn kvíða.

Ég hef sjálf reynslu af kvíða og veit hversu hamlandi það er að glíma við hann. En í raun og veru er það kvíðanum að þakka að ég helti mér út í jóga á sínum tíma. Ég hafði stundað jóga í einhvern tíma og fann að það var að gera góða hluti fyrir mig. Ég hef alltaf átt við mjög erfiðan prófkvíða að etja í mínu háskólanámi og próftíminn var mér alltaf mikið kvalræði. Einnig komu tímabil þar sem ég fékk slæm kvíðaköst sem gerðu enginn boð á undan sér, jafnvel ef ég var út í búð og það var ekki skemmtileg reynsla.

Það sem ég áttaði mig á í þessu kvíðaferli mínu var að jóga er ekki bara bundið við mottuna eða jóga tímann, því jóga getur og á að fylgja okkur inn í okkar daglega líf. Ég ákvað á þessum tíma að fara í jóga á hverjum degi og nota slökun líka heima. Það gerði það að verkum að kvíðinn minnkaði mikið og í dag fæ ég ekki lengur þessi kvíðaköst. Auðvitað finn ég fyrir kvíða ef ég er að takast á við eitthvað nýtt eða ef mikið álag er á mér en það er eðlilegt og núna veit ég líka hvað ég þarf að gera til að koma í veg fyrir kvíðann. Ég skelli mér auðvitað í jóga eða nota slökun og öndunaræfingar.

Að auki er hugleiðsla/íhugun ótrúlega kröftugt verkfæri og að mörgu leyti eins og hin besti sálfræðitími en ég mun ræða það síðar. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á að jóga getur dregið úr streituviðbrögðum og þar með verið hjálplegt við bæði kvíða og þunglyndi. Minni streituviðbrögð geta líka leitt til lægri hjartsláttar hraða, blóðþrýstings og auðveldað öndun.

Öndunaræfingar eru stór hluti af jóga iðkuninni og er kenndar í jógatímum. Hér mun ég fara í gegnum tvær tegundir af öndunaræfingum sem eru auðveldar en áhrifamiklar og geta hjálpað við kvíða og jafnvel svefnvandamálum. Þær hef ég notað óspart til dæmis áður en ég hef farið í próf eða áður en ég á að koma fram einhversstaðar.

Áður en byrjað er á öndunaræfingunum er gott að koma sér vel fyrir í sitjandi stellingu á stól eða með krosslagðar fætur á mottunni. Einnig er hægt að vera liggjandi. Augun lokuð og einbeitningin á önduninni. Reyna að vera slök í andliti og öxlum.

Kviðöndun: Gott er að leggja lófana á kviðinn. Á innöndun þenjum við út kviðinn og á fráöndun drögum við naflann inn. Á innöndun teljum við upp á 4 í huganum og 4 við útöndun. Gott er að byrja á 4 umferðum.

Jógaöndun/djúpöndun: Gott er að leggja hægri lófa á brjóstkassann og vinstri lófa á kvið. Á innöndun byrjum við á að þenja fyrst út kvið, síðan brjóstkassa og lyfta öxlunum aðeins, fylla lungun upp í topp. Á fráöndun byrja axlirnar að síga og síðan fellur brjóstkassinn og að lokum drögum við naflann inn. Hér er fráöndunin lengri en innöndunin. Við teljum upp á 4 á innöndun og 8 á útöndun.

Að lokum eitt jóga gullkorn „ In the breath, the soul finds an opportunity to speak“ –Dana Faulds.

Gangi ykkur vel!

Kærleikur&ljós

Inga

1 svar við Jóga gegn kvíða

  1. Halldóra Ásmundsdóttir's Gravatar Halldóra Ásmundsdóttir
    26/07/2010 at 09:45 | Permalink

    Sæl Inga

    Mig langar til að athuga hvort ekki sé hægt að fá DVD disk sem leiðbeinir manni um jóga gegn kvíða.
    Ég lærði jóga fyrir nokkuð mörgum árum. Vantar eithvað til þess að koma mér á stað aftur, því að ég veit havað jóga gerði gott fyrir mig á sínum tíma.

    Kv. Halldóra Ásmundsd. doralha@simnet.is

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?