Ágústa Andersen nálastungufræðingur og hómópati skrifar
Það er erfitt að koma því á framfæri hvað yin og yang er, því það er ekkert sem er ekki annaðhvort eða bæði. Þetta hljómar eins og en einn óskiljanlegur frasi úr kínverskum fræðum sem á nákvæmlega ekkert erindi við upplýst nútímafólk, það skal viðurkennast. Þessi ævagömlu fræði hafa nú samt staðist tímans tönn, því það er jú einu sinni þannig að það sem er satt er satt í dag og á morgun.
Þessi tiltekna pæling um að allt sem lifir og er þurfi að að lúta lögmálum jafnvægis á milli ólíkra afla er bæði einstaklega djúp og heillandi og leyfi ég mér þess vegna að máta hana við atburði líðandi stundar til að varpa smá ljósi á þá fullyrðingu. Þetta verður fyrsti og síðasti pistillinn þar sem bankahrunið kemur við sögu, en það sem þar átti sér stað er svo lýsandi dæmi fyrir yin yang ójafnvægi það er bara ómögulegt að sleppa því að tala um það.
Ef tekin eru dæmi um hugmyndafræðilegan mun á yin og yang, þá er yin er oft kallað „hið kvenlega“; það sem t.d. er kyrrt, djúpt, mjúkt, myrkt, nærandi og slakandi. Innsæi, draumar, svefn, tilfinningagreind, sjálfsþekking, samvinna, viska og varkárni má líka telja til yin einkenna. Yang er aftur á móti „hið karlega“; hiti, hreyfing, vaka, hraði, hugmyndir, fróðleikur, rökhugsun, samkeppni, athafnir og áreynsla. Yang vill halda áfram og belgjast út, yin vill draga sig saman og festa rætur. Það er augljóst að án yang festist yin í kyrrstöðu og stöðnun. Án yin hefur yang enga fótfestu, heldur þeytist áfram í offorsi, án þess að stoppa og pæla í hvert hann stefnir.
Oft er talað um að yin sé boginn en yang sé örin; krafturinn og stefnan kemur frá boganum (grundvallar sjónarmið og stefna) en örin sér um að komast þangað (framkvæmd í verki). Afleiðing langvarandi ójafnvægis á milli yin og yang verður einhverskonar krísa, það er eitthvað sem verður undan að láta, dæmið gengur ekki upp. Ég þarf líklega ekki að fjölyrða um tenginguna við bankahrunið, en klassískara dæmi um það hvernig yang ofvirkni endar á sprengingu er varla til. Ég læt eftir lesandanum að íhuga hvernig hægt er að rétta hlut „yin“ í þessu samhengi.
Þessi tiltekna tegund ójafnvægis birtist reyndar mjög víða í dag, bæði í hnattrænum skilningi og hjá okkur sjálfum. Það er eins og það séu fáir sem ekki eru haldnir yin-skorti í einhverri mynd, en birtingarmyndirnar eru fjölmargar. Gott dæmu um yin yang jafnvægi innra með okkur er virkni sjálfvirka taugakerfis manneskjunnar sem skiptist í tvennt; það sympatíska og parasympatíska. Þegar hið fyrrnefnda er við stjórn þá flæða streituhormón um líkamann, við erum spennt og stressuð, með hjartslátt, tilbúin í átök. Hið síðarnefnda á við þegar við getum tekið upp næringu; meltingarvökvar flæða, hjartslátturinn hægist, við erum örugg og getum slakað á vöðvunum. Yin og yang birtast þarna kristaltært, og mikilvægt að læra að þekkja hvorutvegga vel til að hafa þar einhver áhrif.
Jafnvægi á milli yin og yang þarf að eiga sér stað í hinu stóra jafnt sem hinu smáa, jafnvægi milli þess að gefa og þiggja, slökunar og athafna, svefns og vöku. Til að okkur líði vel þurfum við að muna eftir þessu jafnvægi. Við getum breytt sjálfum okkur til batnaðar, fyrir okkur sjálf og alla hina. Við sjálf erum í stöðugum dansi til að halda jafnvægi en lykillinn að því er sjálfsþekking og virðing fyrir þeim öflum sem eru að verki innra með okkur og utan við okkur.


(Einkunnir gefnar:9, meðaltal: 4,56 out of 5)
