Vantar þig hugmynd að grímubúningi?

Það tekur nokkra klukkutíma að búa til svona Legókallabúninga

Það tekur nokkra klukkutíma að búa til svona Legókallabúninga

Öskudagurinn nálgast óðfluga og það eru ekki bara börnin sem velta fyrir sér hvaða búningi eigi að klæðast fyrir daginn heldur eru margir fullorðnir sem nota tækifærið og klæða sig upp.

Á síðunni coolest-homemade-costumes.com má finna fjöldan allan af hugmyndum fyrir búninga við öll tækifæri, fyrir börn og fullorðna. Allt heimagert – enda leiðinlegt að kaupa búning út úr búð og hitta svo fyrir tugi annarra í nákvæmlega eins búningi.

Hvort sem þú ætlar að leggja margra daga vinnu í búninginn eða reyna seta saman eitthvað úr því sem til er heimafyrir er uppspretta hugmynda á síðunni endalaus. Fólk víðsvegar að sendir inn sínar útfærslur og hugmyndir af búningum og það er greinilegt að fólki finnst alltaf jafn gaman að klæða sig upp.

Búningarnir eru flokkaðir niður. Viltu vera matur á öskudaginn? Fræg persóna? Dýr? Vantar allri fjölskyldunni eitthvað búningaþema? Eða vill kærustuparið vera í samstæðum búningum? Þarna má finna hugmyndirnar.

Myndin er af hópi fólks sem tók sig saman og bjó til legókallabúninga. Þetta eru mjög metnaðarfullir búningar, vinnuferlið er svolítið langt, krefst útreikninga og nákvæmni og efniskostnaðurinn er töluverður. En gleðin yfir því að vera í flottum búningi sem er nákvæmlega eins og fyrirmyndin er alltaf ánægjuleg. Hér má sjá hvernig legókallabúningarnir voru gerðir.

2 svör við Vantar þig hugmynd að grímubúningi?

  1. stefan benediktsson's Gravatar stefan benediktsson
    11/02/2010 at 09:31 | Permalink

    Öskudagur: Þrír möguleikar: 1. Rok og kuldi, 2. Rok og rigning, 3. Rok, rigning og kuldi. Fyrsta boðorð: Ekki vera kalt. = allar lausnir miðast við að vera þurr og vera hlýtt. Þá helst góða skapið og skemmtunin. Grýla eða mýsla geta báðar verið íklæddar svörtum ruslapoka en andlitsförðunin er ólík. Hugmyndaflugið vinnur.

  2. 19/07/2010 at 21:39 | Permalink

    Lots of specialists argue that credit loans aid people to live their own way, because they can feel free to buy necessary stuff. Moreover, banks present short term loan for different persons.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?