Tískuvikurnar framundan – New York, London, Mílanó og París

Caroline Rush hjá breska útflutningsráðuneytinu og hin fræga Grace Coddington hjá bandaríska Vogue kynna sér undirbúning fyrir tískuvikuna í London

Caroline Rush hjá breska útflutningsráðuneytinu og hin fræga Grace Coddington hjá bandaríska Vogue Ljósmynd: Tinko Czetwertynsk

Eftir örfáa daga mun elítan í tískuheiminum hefja ferlið sem felst í því að sýna umheiminum hvernig hausttískan mun líta út. En í heimi tískunnar er febrúar og mars mánuður er undirlagður tískuvikum í helstu tískuborgum heimsins.

Fyrst byrjar tískuvika í New York þann 11 – 18 febrúar þar sem hönnuðir á borð við Marc Jackobs og Donnu Karan sýna haustlínuna sína.

Vikuna eftir eða frá 19 – 24 febrúar tekur svo við tískuvikan í London þar sem tugir þekktra fatahönnuða sýna.

Todd Lynn og Anthony Myles undirbúa sig fyrir tískuvikuna í London. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Todd Lynn og Anthony Myles undirbúa sig fyrir tískuvikuna í London. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Sama dag og tískuvikunni í London lýkur tekur tískuvikan í Mílanó við þar sem hönnuðir frá hátískuhúsunum á borð við Prada, Dolce and Gabbana og Armani sýna haustlínuna.  Tískuvikan í Milanó stendur frá 24. febrúar til 3. mars

Síðasta og oftast glæsilegasta tískuvikan er svo haldin í París þar sem hátískuhúsin Dior og Chanel ásamt fleirum sýna í Louvre safninu. Vikan hefst þann 3. mars og stendur til 10. mars og verður þá loksins orðið ljóst hvert stefnan verður tekin í hausttískunni fyrir hinn Vestræna heim.

Roberta Valentini. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Roberta Valentini. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Anouck Lepere og Maria Frencesca Pepe. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Anouck Lepere og Maria Frencesca Pepe. Ljósmynd Tinko Czetwetynski

Hér á finna nánari upplýsingar um tískuvikurnar fjórar fyrir þá sem vilja fylgjast náið með framþróun hausttískunnar:

Tískuvika í New York 11 – 18 febrúar

Tískuvikan í London 19 – 24 febrúar

Tískuvikan í Milano 24 febrúar – 3 mars

Tískuvikan í París 3 – 10 mars

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?