
Undanfarið hafa greindustu framhaldsskólanemar landsins tekist á í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Átta liða úrslitin hefjast á laugardaginn og þá fer keppnin úr útvarpinu og yfir í sjónvarpið. Á laugardaginn mætast Menntaskólinn á Egilsstöðum og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. Nýr dómari og spurningahöfundur er mættur til leiks í Gettu betur og honum finnst frekar svekkjandi þegar spurningu sem hann hefur lagt sig fram við að semja er svarað um leið. Miðjan spurði hann spjörunum úr.
Fullt nafn: Örn Úlfar Sævarsson
Aldur: 36 ára
Hjúskapastaða: Kvæntur Ástu Andrésdóttur
Starf: Texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Fíton. Spurningahöfundur og dómari í Gettu betur í hjáverkum.
Hvernig er hefbundinn vinnudagur hjá þér? Geng í vinnuna kl. 9. Hugmyndafundir, tölvupóstar, textaskrif, -breytingar og –leiðréttingar, fundir með viðskiptavinum, COD4, netráp, myndatökur, kynning á hugmyndum, og spjall við mitt frábæra samstarfsfólk á Fíton. Þetta blandast saman í mismunandi hlutföllum á hverjum degi. Yfirleitt kemst ég heim milli fimm og sex en stundum er unnið lengur og um helgar. Annars vinn ég og grúska í spurningum fram á kvöld en reyni að lesa og horfa á eitthvað skemmtilegt líka.
Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lítill? Sjóræningi. Hef enn ekki gefið þann draum upp á bátinn.
Hver er saga þín í spurningakeppnum? Sú saga er að gerast akkúrat núna, með þessu Gettu betur verkefni. Útvarpshlutinn gekk ótrúlega vel og ég hef fengið mjög jákvæð viðbrögð við spurningunum mínum og dómgæslunni. Forsagan er samt þannig að það má segja að ég hafi alist upp á bókasafni. Ég hef alltaf verið mjög forvitinn og endaði þvi uppi með hausinn fullan af gagnslausum upplýsingum. Trivial Pursuit var himnasending. Ég var ekki í Gettu betur liði í Menntaskóla en undanfarin ár hef ég oft keppt í Drekktu betur á Grand rokk og gengið þokkalega og fengið að spreyta mig sem spurningahöfundur og spyrill. Keppti einu sinni í Meistaranum hjá Loga Bergmann. Ég giftist líka inn í mikla spurningakeppna-fjölskyldu, en tengdafaðir minn er Andrés Indriðason, sem sér um dagskrárgerð Gettu betur.
Var það hann sem kom þér í þetta starf? Nei, og hann var bara hissa þegar þetta gerðist. Þórhallur Gunnarsson sá alfarið um þessi mál. Hann sagðist hafa leitað ráða hjá fyrrverandi dómara og kom mitt nafn þar upp. Svo ræddum við málin og nú sit ég í súpunni.
Hvort er skemmtilegra að svara spurningum eða búa þær til? Það er góð spurning. Það versta er þegar maður hefur lagt mikla vinnu í snjalla og vel útfærða spurningu í löngu máli – en bjöllunni er hringt og svarið kemur strax eftir fyrstu setningu.
Veit æska Íslands eitthvað? Já. Hún veit allt og getur allt. Það erum við sem eldri erum sem vitum ekkert í okkar haus. Guðni Ágústsson orðaði þetta einhvern veginn svona: „Þegar öllu er á botninn hvolft þá er betra að hafa góðar hægðir en góða greind.“
Ætlar þú ekki alveg örugglega að vera í dómaraskikkju í sjónvarpinu eins og þú lofaðir? Það átti aðeins við um útvarpshlutann!
Hvað er Gettu betur liðunum hollt að kynna sér sérstaklega þegar þau þurfa að sitja undir spurningum frá þér? Það á eftir að koma í ljós.
Svaraðu þessu! Listamannsnafn þessarar manneskju er sótt í lag eftir Queen, hún hefur sagt að Rainer Maria Rilke sé hennar eftirlætisheimspekingur en Donatella Versace sé þó sú sem veiti henni mestu andagiftina. Hver er þetta? Það er annað hvort Diddú eða Lady Gaga. (Rétt svar er Lady Gaga)
Hvaða lifandi manneskju dáir þú mest og af hverju? Elvis Presley – need I say more?
Hvað líkar þér best og verst við í fari þínu? Leti er verst. Jákvæðni líklega skást.
Hvert er vandræðilegasta augnablik lífs þíns? Þegar ég sat í heita pottinum í Neslauginni og gerði grín að ónefndri sjónvarpskonu sem var að synda án þess að átta mig á að maðurinn og börnin hennar voru í pottinum líka. Ég fæ hroll þegar ég rifja þetta upp.
Hver eru mestu vonbrigði lífs þíns? Að hafa ekki enn búið í útlöndum svo nokkru nemi.
Áttu þér uppáhalds setningu úr kvikmynd sem þú vitnar oft í? Hú-ha! (Al Pacino: Scent of a Woman)
Hvað er það versta sem einhver hefur sagt við þig? „Nei, það er ekki hægt“
Hver er laumunautnin (ens: guilty pleasure) þín? Brauð með tómatsósu og að bora í nefið.
Hvað er leiðinlegasta ferðalag sem þú hefur farið í og afhverju? Ég fer ekki í leiðinleg ferðalög.
Ef þér yrði boðin ferð í tímavél – til hvaða tíma myndirðu fara? Til ársins 2007.
Ef þú fengir einn dag á Alþingi sem einráður, hvaða lögum myndirðu breyta? Lögum um verðtryggingu, stimpilgjöld og friðun snæhéra á Íslandi.
Hvað telur þú vera mesta afrek þitt? Að fá fólk til að trúa því að ég sé yfir meðalgreind.
Hvað heldur þér vakandi á nóttinni? Tilhugsunin um að geta ekki sofnað.
Hefur þú verið handtekinn og ef svo er, fyrir hvað? Slapp naumlega við handtöku þegar ég og félagi minn ákváðum að hlaupa á nærbuxunum kringum aðaltorgið í Aix-en-Provence til að lífga upp á kyrrlátt mánudagskvöld fyrir nokkrum árum. Um leið og við lögðum af stað þá renndi löggan inn á torgið og tók sprettinn á eftir okkur.

