Hátískan vor/sumar 2010

Chanel

Pífubrjálæði og stórt hár hjá Chanel

Hátískuvikan í París er nú á enda og búið að leggja línurnar fyrir vorið. Við Íslendingar gætum átt í vandræðum með að leggja pastellitina sem boðaðir eru upp við föla húð vora en hátískufatnaður er kannski ekki heldur á innkaupalistanum.

Hátískan á að vera fantasíuveröld, list í formi fatnaðar, annars er lítil ástæða til að aðskilja hana frá ready-to-wear línunum, en þann mun var varla að finna á tískupöllunum að þessu sinni. Aðalsmerki hátískunnar; yfirdrifnir kjólar með óviðjafnanlegu magni af blúndu, perlum og pallíettum, alltsaman handsaumað, voru sjaldséð sjón. Þessi andi iðnaðarins hefur kannski ekki verið beinlínis á uppleið undanfarin ár og því varla við öðru að búast. En þrátt fyrir þetta kvart mitt fékk ég fiðrildi í magann í hvert skipti sem ég opnaði nýjan glugga á vafranum. Þetta er nú einu sinni hátískan, engu öðru líkt, efnin engu öðru lík, handbragðið, sagan, verðið, engu öðru líkt.

Hátískulínur virðast oftar endurspegla stíl tískuhúsanna en tíðarandann, sér í lagi hjá þeim sem eru gömul í hettunni. Þannig var Chanel með sínar einkennandi dragtir að vanda og fatnaður Dior íburðarmikill. En pastellitir annarsvegar og hárautt hinsvegar virtust eiga fastann sess á pöllunum ásamt stuttbuxum og gervihári í allskyns litum. Og einnig fannst mér efnin spila stærri rullu en silúetturnar í þettað skiptið.

Ég ætla mér að fara yfir flestar sýningarnar en við byrjum á fyrstu 5 í stafrófinu og hinn helmingurinn kemur í næstu færslu. Því miður höfðu ekki öll tískuhúsin sett hátískumyndir á heimasíður sínar en ég læt linka yfir á style.com eða á síður þeirra PR-snjöllu.

Alexis Mabille
Mabille er nýji gæjinn á aðeins eftir að hlaupa af sér hornin.
Ég er ekki frá því að Með allt á hreinu hafi komið upp í hugan en módel í tvískiptum fatnaði strunsuðu niður pallinn og meira að segja skór og hár fylgdu litaskiptingum.  Mikið var um útgáfur af klassískum flíkum eins og tvíhnepptum jakka, skyrtum og aðsniðnum síðerma kjól. Einnig boðaði Mabille stuttbuxur, siffon, slaufur og hélt áfram með þema sem við höfum séð undanfarið ár; bera öxl öðru megin.
Stíllinn minnti öðru hvoru á hlédrægari og lélegri útgáfu af Viktor og Rolf, kannski sérstaklega slaufutúlkunin. Flíkurnar voru hinsvegar frekar stílhreinar og seljanlegar en kannski ekki alveg nógu fágaðar. Hárið var eiginlega athyglisverðara en fötin. Brúðarkjóllinn var reyndar hressandi en minnti heldur of mikið á hvíta búrku.
http://www.style.com/fashionshows/review/S2010CTR-AMABILLE

Anne Valérie Hash
Ennþá tiltölulega ný í bransanum (á hátískuskalanum allavega) og til í smá grín og glens. Hún sendi frá sér mjög androgynous (þverkynja?) línu og var líka með karlatísku sem er mjög óvenjulegt. Þannig var maður ekki alltaf viss hvað var karl og hvað var kona en þau voru öll vel klædd. Afslappað, afbygging og chic grunge eru orð ég myndi velja til að lýsa stílnum. Mikið var um málmleg efni og þeim jafnvel blandað við munstur af öðrum heimi. Hash leikur sér skemmtilega með klassískar flíkur og afbyggir þær á sinn einstaka hátt.
http://www.style.com/fashionshows/review/S2010CTR-AVHASH

Armani Privé
Giorgio Armani virðist óþreytandi. Tunglskin virtist vera byrjunarþema Armani en fyrir utan útlit og lýsingu  sýningarpallsins var það endurspeglað í efnisvali, beinlínis tunglskreyttum fatnaði og einu fullu tungli í formi einskonar poncho-jakka. Þemað var svo styrkt með keim af 7. áratugnum og framtíðar-geimstílnum sem þá tíðkaðist þótt að silúettan hafi síður en svo verið einkennandi fyrir þann áratug. Dragtir í ljósgráum, pastel-bleikum, ljós-blágrænum, svörtum og metallic útgáfum af öllu þessu. Svo glansandi að það þyrfti svarthol til að maður týndist í einum svona galla. Þrátt fyrir fremur kitschlega nálgun á tungl, tunglskin og tunglferðir, var línan allt í allt frekar einsleit og óspennandi, að því sögðu væri ég svosem alveg til í að fá eina glansdragt og tunglhálsmen til að eiga þegar tími almenningstunglferða rennur upp.
http://www.style.com/fashionshows/review/S2010CTR-APRIVE

Lady Gaga í kjól frá Armani á Grammy verðlaunaafhendingunni

Lady Gaga í kjól frá Armani á Grammy verðlaunaafhendingunni

Chanel
Hinn ofvirki Karl Lagerfeld heldur ótrauður áfram. Klassískar dragtir í mjúkum pastel-litum sem þegar nánar er að gáð samanstanda sumar af jakka og stuttbuxum við hár sem við myndum kalla stórt en Marie Antoinette hversdags. Mildir litirnir minntu örlítið á fæðingardeild og henta alls ekki öllum húðtónum. Mjög fágaðar flíkur með smá töffaratvisti í formi fylgihluta eins og við er að búast af meistara Karl Lagerfeld. Skartgripirnir voru í anda 7. áratugarins og bæði litapalletta og stíll ollu því að mér varð hugsað til frumgerðar myndarinnar Charlie and the Chocolate Factory. Annars var stíllinn helst nútímaútgáfa af 3. áratugsdömu. Pallíettur, blúndu, pífur, siffon og satín var reyndar allt að finna hjá Chanel en ég var samt sem áður hrifnari af því sem var meira hversdags og ekki eins áreinslusamt og sumir kjólarnir. Einfaldleikinn virtist virka best hjá Kalla að þessu sinni og pífupartýið varð þvingað og ofgert. Babydoll náttföt í lokin gerðu næstum útslagið áður en lokahnikkurinn var settur með brúðhjónum, hún í klassískum Chanel-kjól með stórum pífuslóða og hann í silfurlitum geimfarabúningi frá toppi til táar.
http://www.chanel.com/fashion/7#7-haute-couture-printemps-ete-2010-chanel-fashion-show-16,0

Ósamhverfur satínkjóll frá Chanel

Ósamhverfur satínkjóll frá Chanel

Vel heppnuð flík hjá Chanel

Vel heppnuð flík hjá Chanel

Silfraðir fylgihlutir hjá Chanel

Silfraðir fylgihlutir hjá Chanel

Undarleg brúðhjón Chanel

Undarleg brúðhjón Chanel

Christian Dior
John Galliano fyrir Dior svíkur sjaldan þegar kemur að hátískunni, allavega er eitthvað þar að skoða. Sýningin byrjaði á reiðþema að þessu sinni með köflum, rassmiklum pilsum, pískum og himinháum leðurstígvélahælum. Annaðhvort sá ég ofjsjónir eða það var dálítill Vivienne Westwood-bragur á þessu öllu saman. Það var eitthvað við sniðin, skóna og rokkið… Reiðþemað leiddi út í Dolly Parton-legan kántrístelpustíl með öllum þeim pastellitum og blómum sem því fylgir. Loks kláraðist sá kafli sýningarinnar og maður fór kannast við sig í hinum eina sanna Galliano-heimi; einskonar há-burlesque. Há mitti, háir hælar og háir leðurhanskar út í gegn. Hann setti svo punktinn yfir i-ið með pilsmiklum kjólum í sama stíl.
http://www.diorcouture.com/uk/dior_uk.html

Reiðþema í anda Vivienne Westwood hjá Dior

Reiðþema í anda Vivienne Westwood hjá Dior

Dior Parton?

Dior Parton?

Dior

Há mitti og leðurhanskar hjá Dior

Dior - Þetta kalla ég hátísku!

Dior - Þetta kalla ég hátísku!

Ég skoða þetta á style.com sem síða síðanna þegar kemur að tískusýningum og það er fyllilega þess virði að smella á full-screen-hnappinn.

Góða skemmtun!

Gefðu greininni einkunn

1 Stjarna2 Stjörnur3 Stjörnur4 Stjörnur5 Stjörnur (Einkunnir gefnar:8, meðaltal: 5,00 out of 5)
Loading ... Loading ...

2 svör við Hátískan vor/sumar 2010

  1. 08/02/2010 at 16:35 | Permalink

    alltaf gaman að lesa tískugreinarnar, frábær comment , við viljum meira svona greinar frá þér í framtíðinni

  2. Nautnabelgur's Gravatar Nautnabelgur
    11/02/2010 at 22:06 | Permalink

    Skemmtileg grein – Dior laaaaaaaang flottast.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?