Borgríki: Kvikmynd sem verður aldrei gerð?

Ágústa Eva Erlendsdóttir leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni Borgríki

Ágústa Eva Erlendsdóttir leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni Borgríki

Í síðustu viku var þessi kitla fyrir kvikmyndina Borgríki eftir Ólaf De Fleur Jóhannesson, sýnd. Kitla og ádeila, en Ólafur er eins og margir kvikmyndagerðarmenn óánægður með þá ákvörðun menntamálaráðherra að skera niður framlög til kvikmyndasjóðs og að RÚV hafi ákveðið að skera niður í kaupum á íslenskum kvikmyndum.


Myndin fjallar um undirheimana á Íslandi og segir af fjórum einstaklingum sem rekast harkalega á þegar erlend mafía reyni að taka yfir eiturlyfjasölumarkaðinn á Íslandi. Allar fjórar manneskurnar eru úr ólíkum áttum.

Ólafur segir að myndin hafi ekki enn verið kláruð, eins og kemur fram í kitlunni. „Við erum að reyna að ná saman fjármagni. Fá aðili í lið með okkur erlendis. Handritið er klár og leikararnir eru mjög jákvæðir. Við vildum hins vegar taka upp kitluna og eitt eða tvö atriði til að finna aðeins fyrir þessum heimi sem við erum að skapa, sjá hversu erfitt þetta verður. Við ætluðum í raun ekki að gera þetta opinbert en við vildum svo vekja athygli á stöðu kvikmyndasjóðs. Sýna hversu illa er farið með kvikmyndaiðnaðinn hér á landi,” segir hann. „Eins og staðan er núna er ekki víst hvort myndin verður gerð. Við reynum okkar besta. Maður þarf bara að passa að fara ekki á hausinn, það er frægt í þessum bransa, en er aldrei þess virði.”

1 svar við Borgríki: Kvikmynd sem verður aldrei gerð?

  1. Jóhann Dagur's Gravatar Jóhann Dagur
    09/02/2010 at 17:24 | Permalink

    hey einn hugmynd !
    hvað með að nota eitthvað af peningunum sem voru í skjalatöskuni sem Björn Thor var með ?
    það hlýtur að geta boostað þetta verkefni eitthvað pínu

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?