
Við hvert ár sem börn bæta við sig í aldri breytist smekkur barna á leikföngum og þar með þarf oft að endurskipuleggja barnaherbergið. Á síðunni Ohdeedoh.com má finna fjölda ljósmynda af barnaherbergjum sem eru í eigu barna á öllum aldri. Allt frá fölbleikum prinsessu herbergjum til ævintýralegra herbergja fyrir eldri börn. Þessi síða er tilvalin fyrir þá sem eru að hanna fyrsta herbergi barns eða vilja breyta ,,smábarna“ herbergi í barnaherbergi eða barnaherbergi í unglingaherbergi.
Hér birtast nokkrar nokkur sýnishorn af myndum síðunnar en hægt er að skoða síðuna Ohdeedoh.com með því að smella hér.




