An Education – ,,Hrein og einskær list“

an_education01An Education

Leikstjóri Lone Scherfig

Jenny vissi að hún átti ekki að þiggja far með ókunnugum. Henni fannst bara ekki David vera ókunngur, þrátt fyrir að hún hefði aldrei séð hann fyrr. Þegar hún hugsaði til baka, mörgum árum síðar velti hún fyrir sér hvort hún hefði þegið farið, hefði hún vitað þá, það sem hún viss í dag. Sögusviðið er England, árið er 1961.Jenny er 16 ára, afburðanemandi og stefnir á nám í Oxford háskólanum þegar hún hittir hinn veraldavana David sem hrifsar hana út úr gráma hversdagsleikans.

Áður en hún veit af er hún farin að leika tveimur skjöldum og lífið verður aldrei samt á ný. Á daginn er hún saklaus skólastúlka en á kvöldin smellir hún sér í aðskorin kjól, borðar á fínum veitingastöðum eða dansar á trylltum jassklúbbum. Nú eða skýst til Parísar yfir helgi með uppsett hár. Hún fær að upplifa listheiminn, sígilda tónleika, menningu og bókmenntir, allt sem hana hafði bara dreymt um. Hún er komin með forskot á sæluna, hún er komin út í lífið.  An Education er byggð á æviminningum blaðakonunnar Lynn Barber og minnir óneitinlega í fyrstu á aðrar frásagnir með hið margrómaða Lolitu þema. Eldri maður lokkar til sín barnunga unglingsstúlku með einhverskonar ástarsamband í huga.

Það sem gerir An Education frábrugna er fyrir það fyrsta samþykki foreldra Jennyar sem binda allar sínar vonir við einkadóttur sína, hvort heldur sem hún giftist efnuðum manni eða fari í háskólanám til Oxford. Og hve þroskuð og klár Jenny er í aðstæðum, sem hún á í raun og veru ekki að þurfa standa frammi fyrir á þessum aldri.  Sagan er einnig sígild “coming of age” saga sem er á sama tíma laus við allar klisjur og þarna er á ferð ferskur tónn sem að miklu leyti kemur frá danska leikstjóranum Lone Scherfig. Hún vakti fyrst alþjóða athygli með dogma myndinni, Ítalska fyrir byrjendur árið 2000 og kom í kjölfarið með Wilbur wants to kill himself árið 2002.

Scherfig hefur svo sannarlega fundið sinn stíl sem sækir að einhverju leyti innblástur frá dönsku dogma stefnunni og einhverjir sjá eflaust örla á áhrifum frá bresku leikstjórunum Mike Leigh og Lynn Ramsay. Það er eitthvað skandinavískt yfirbragð sem dansar dásamlega við breskan veruleika sjöunda áratugar síðustu aldar. Handritshöfundurinn er enginn annar en Nick Hornby, sem hefur skrifað fjölmargar skáldsögur sem ratað hafa á hvíta tjaldið. Nægir þar að nefna Fever Pitch, About a boy og High Fidelity.

Þetta er hins vegar fyrsta handrit Hornby sem ekki er byggt á hans eigin sögu og jafnframt fyrsta Óskars tilnefning Hornby. Leikurinn er að öllu leyti frábær og má þar nefna, Alfred Molina sem faðir Jennyar, Peter Saarsgaard sem David, auk Rosamunda Pyke, Dominic Cooper, Oliviu Williams og Emmu Thompson í litlu hlutverki. Jenny sjálf er leikin af breska nýstirninu Carey Mulligan, sem aðeins 24 ára gömul fékk nú tilnefningu til Óskars verðlauna fyrir bestan leik kvenna í aðalhlutverki. Hún fer algjörlega á kostum með látleysi sínu og fer allt aðrar leiðir en aðrar leikkonur af hennar kynslóð. Hún er hvorki að forðast kynþokka, sem oft er að sjá í minni “indipendant” kvikmyndum, né leggur hún allt sitt traust á að selja sig eða söguna með stút á vör. Hún er bara einfaldlega þrusu leikkona, sem bæði reynir og tekst að túlka Jenny á svo raunsæan hátt að það er hrein unun að horfa á.

Myndin er einstök perla, sem nú fær nú blessunarlega að njóta sín í hinum stóra heimi því auk tilnefninga Hornby og Mulligan, er hún  einnig tilnefnd í flokki sem besta myndin. Með sanni má segja að An Education er hrein og einskær list.

Rut Hermannsdóttir

An Education er sýnd í Sambíóunum.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?