Allir nýburar fá húfu

hufaKvenfélagasamband Íslands fagnar 80 ára afmæli sínu í dag 1. febrúar. Í tilefni af því verður opið hús í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14, milli kl. 17:00 – 19:00. Þar verður boðið upp á kaffi og kökur að gömlum íslenskum sið. Kvenfélagskonur um allt land munu halda upp á afmælið en aðaverkefni ársins er húfuverkefnið – en það snýst um að kvenfélagskonur prjóni húfur sem allir nýburar á Íslandi þetta árið fá að gjöf.

Fyrsta kvenfélagið, Kvenfélag Rípurhrepps, var stofnað árið 1869 en síðan þá hafa hundruð kvenfélaga verið stofnum með það að markmiði að bæta samfélagið, sérstaklega hvað varðar málefni barna, kvenna og fjölskyldna. Má segja að konur hafi með því tekið völdin í sínar hendur löngu áður en þær fengu aðgengi að stjórnkerfinu með kjörgengi og kosningarétti. Kvenfélagasamband Íslands var stofnað árið 1930. Störf kvenfélagskvenna eru og hafa verið samfélaginu öllu afar mikilvæg þó ekki hafi þau alltaf farið hátt eða mikið farið fyrir þeim í fjölmiðlum. Það er því löngu tímabært að sérstakur dagur sé helgaður kvenfélagskonum og hefur formannaráð Kvenfélagasambands Íslands einhliða lýst 1. febrúar, ár hvert, „Dag kvenfélagskonunnar“, segir í fréttatilkynningu.

Konur eru hvattar til að kynna sér störf síns nágrannakvenfélags og taka upp prjónana fyrir afmælisverkefni ársins.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?