
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
Páll Bergþórsson fyrrum veðurstofustjóri er landsmönnum flestum kunnur enda stóð hann í fjölda ára við veðurkortið í lok hvers fréttatíma Sjónvarpsins og sagði okkur hvers við mættum vænta af veðurguðunum næstu daga. Nú er hinn glaðværi, 87 ára gamli veðurstofustjórinn mættur á Facebook galvaskur og hefur vakið athygli vina sinna fyrir skemmtilega og uppfræðandi nærveru. Á síðunni hans má lesa fjölda skilaboða frá þakklátum vinum hans því veðurstofustjórinn stendur rækilega undir nafni á Facebook þar sem hann birtir daglega veðurspá næstu níu daga.
Miðjan fékk leyfi hjá Páli til að gera Facebook úttektina á honum í þetta skiptið og forvitnaðist um hvað Fésbókin segir um manninn.
Páll kallar Facebook að vísu Fasbók sem er líklega sú þýðing á orðinu sem nær best utan um það sem Facebook er. En hvernig er Páll í fasi á Fasbókinni?
Í morgun mátti finna veðurspá næstu daga á síðunni hans Páls eins og aðra morgna og þar stóð : Níu daga veðurspá á fasbók. Á morgun A-átt, él á annesjum nyrðra, fremur milt. Á þri 2. og mið 3. A- eða SA-átt, víðast úrkomulaust, kólnandi. Á fim 4. til þri 9. NA-átt, snjókoma með köflum norðan lands, en bjart veður á SV og V-landi, fremur kalt eftir árstíma, einkum á SV-landi.“
En það er ekki bara um veðrið sem fróðlegt er að lesa um á fasbókinni hans Páls því í síðustu stöðuuppfærslu segir hann frá mannanöfnum: Algengustu karlanöfn árið 1703 og fjöldi þeirra: Jón 5363, Guðmundur 1039, Bjarni 1029, Sigurður 856, Ólafur 797, Magnús 713, Einar 693, Þorsteinn 552, Þórður 506, Árni 481, Gísli 419, Björn 396, Halldór 340, Eiríkur 319, Páll 302, Sveinn 294, Oddur 252, Pétur 248, Eyjólfur 236, Helgi 216. Heimild: Ólafur Lárusson prófessor, Nöfn Íslendinga árið 1703.
Páll á ríflega sex hundruð vini sem eru ósparir að þakka Páli fyrir skemmtilegar upplýsingar sem hann setur á síðuna sína og auðvitað veðurspár sínar.
,,Langflottastur“ segir einn vinurinn, ,,takk fyrir skemmtilegar upplýsingar“ segir annar og það eru fjörugar umræður um málefni af ýmsum toga, oft um ættfræði. Meðal þakklátra vina Páls er sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason.
Páll á eins og fyrr segir ríflega sexhundruð vini og þar á meðal má finna þekkta einstaklinga eins og Ellen Kristjánsdóttir, Heru Björk, Drífu Snædal, Gísla Martein, Guðmund Odd, Jakob Frímann og Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra.
Í upplýsingadálkinum á Facebook síðunni má sjá að Páll er fæddur 13. ágúst árið 1923. Hann er í nokkrum hópum félagasamtaka á Facebook og hefur gerst aðdáandi nokkurra einstaklinga og málefna.

Páll við störf í Sjónvarpinu - Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands
Þannig má sjá að Páll er greinilega umhverfissinni því hann er í baráttuhópi á Facebook gegn uppbyggingu þungaiðnaðar á Íslandi og jafnframt hópi Umhverfissamtakanna á Íslandi. Þá er hann hlynntur því að Joseph E. Tiglitz verði næsti efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Páll virðist vera harður andstæðingur Evrópusambandsins enda bæði í hópnum ,,Ísland EKKI Í ESB“ og í hópi Heimsýnar – Hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Hann vill láta sækja útrásarvíkingana til saka og er í samnefndum hópi. Þá tilheyrir hann Þúfnvellingum og Fljótstungufólki enda fæddur í Fljótstungu.
Páll er eins og þekkt er faðir Bergþórs Pálssonar óperusöngvara og í myndasafninu má finna mynd af glaðværri stórfjölskyldunni. Þar má sjá að Páll er ríkur af börnum og barnabörnum sem án efa fylgjast grannt með afa og langafa á Fasbókinni.
Þó Páll hafi án efa togað rækilega upp meðaltalið í aldri á Fasbókinni þá gefur hann unglingum ekkert eftir í heimi samfélagsvefsins. Hann spáir fram í framtíðina, uppfræðir og lætur sér fátt um finnast og hefur íslenskað sjálfan vefinn – Fasbókina.

