
Áslaug og Margrét - Nadia var fjarverandi
Á síðasta ári varð mikið uppgrip í uppistandi á Íslandi og á börum bæjarins var byrjað að halda grínarakvöld þar sem fyndnir komu saman og fórum með gamanmál. Þórdísi Nadiu Óskarsdóttur fannst góðir hlutir vera að gerast en þótti hins vegar verra hversu fáar konur voru með uppistand. Hún stofnaði því hóp á Facebook og kallaði eftir stelpum til að vera með í uppistandskvöldum. Nú þegar hefur hópur stelpna komið fram sem vilja taka þátt og í desember á síðasta ári var haldið fyrsta uppistandskvöldið – þar sem bara stelpur voru á dagskránni.
Þegar Áslaug Einarsdóttir kvikmyndagerðarkona heyrði af þessu fannst henni tilvalið að gera heimildamynd um stelpurnar. Og fylgjast með þeim fóta sig í bransanum. Blaðamaður Miðjunnar kíkti á æfingu hjá stelpunum, en þær verða með uppistand á Næsta bar klukkan 22:00 í kvöld, og ræddi við Áslaugu og hitti einnig fyrir grínarastelpurnar Nadiu og Margréti Erlu Maack. Nadia er nemi í kvikmyndafræðum við HÍ og Margrét vinnur sem útvarpskona á Rás 2. Fyrir utan að vera með uppistand kenna þær báðar magadans – og er því margt til lista lagt.
„Ég fylgi þeim eftir við æfingar, þegar þær troða upp, fylgist með þeim búa til efni og koma með hugmyndir, fara í viðtöl,” segir Áslaug meðan hún skrúfar saman ljósabúnað fyrir tökuvélarnar. Hún er á fullu að safna efni saman fyrir heimildamyndina. „Það eru áhugaverðar spurningar sem vakna. Afhverju hafa konur ekki verið sýnilegar í uppistandi hingað til? Er þetta kannski síðasta karlavígið í listgeiranum, sem þá er verið að brjóta niður? Hvernig gengur það? Ég velti því líka upp hvort húmor sé mismunandi eftir kynjum. Um hvað fjalla stelpurnar? Hvernig fíla þær sig á sviði? Það er mjög gaman að pæla í þessum kynjavinkli – en þetta er fyrst og fremst fyndin mynd um skemmtilega einstaklinga.” Stefnt er að því að frumsýna myndina á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði í vor. Áslaug lofar því að myndin verði athyglisverð.
Blaðamaður snýr sér að Margréti og Nadiu. Eru stelpur með öðruvísi húmor?
„Kannski snýst þetta svolítið um hvernig strákar tala saman og hvernig stelpur tala saman,” segir Margrét. „Strákar ræða um leikinn. Stelpur opinbera sjálfa sig, tala um það sem stendur þeim næst. Tölum um það sem er að gerast í lífinu hjá okkur, til dæmis í strákamálum, þetta er persónulegra,” segir hún.
Og nær þetta í gegn þegar þið troðið upp?
„Ég held að húmor sé einstaklingsbundinn,” segir Nadia. „En þegar við erum bara stelpur saman verður þemað kannski svona persónulegt, við ræðum um kærasta blæðingar, barneignir, eigin reynslu.” Hvort sem húmorinn er öðruvísi eða ekki var þeim afar vel tekið á síðasta uppistandi – það var „veinað af hlátri!” eins og þær orða það.
Stelpurnar segja að það sé mikið kikk fólkið í því að standa á sviði og fá jákvæð viðbrögð. „Þetta er bara eins og heimsyfirráð,” segir Nadia í gríni. „En manni líður svo vel, æðislegt að heyra fullan sal af fólki hlæja. Það var svo góður andi síðast,” segir hún og Margrét tekur undir það. „Það var svo mikill skilningur í salnum, allir skildu hvað maður var að meina og tengir við það. Svo er líka bara gaman að það sé hlegið að manni þegar maður er að reyna að vera fyndinn. Ekki af því maður datt í kaffiteríunni eða eitthvað! Allir voru með manni í liði. Svo er líka gaman að aulasögurnar af manni séu til einhvers,” segir Margrét brosandi.
Stelpurnar segja að þó þær séu amatörar í uppistandi taki þær sig alvarlega og vandi til verka. Bjóða upp á gæðaefni. Nadia segir þetta ekki eiga snúast um að þær séu stelpur. Fókusinn eigi að vera á þær sem einstaklinga. En er erfiðara fyrir stelpur að troða upp? Á Facebook síðu stelpnanna er sagt „þetta snýst um að þora – er það ekki?” Eru stelpur spéhræddari en strákar uppi á sviði?
„Það er svolítið flókið að svara þessu,” segir Nadia. „Ég stofnaði hópinn af því að ég þekki svo margar stelpur sem eru svo ótrúlega fyndnar, en þorðu ekkert að gera neitt með það. Strákarnir í MiðÍslandi ákváðu bara að gera þetta, þetta voru bara félagar sem tóku sig saman.”
„En þegar við byrjuðum var þetta líka í „comfort zone”, bendir Margrét á. „Við þekktumst allar, gerðum þetta með vinkonum okkar, það voru fáir utanaðkomandi sem sáu okkur.”
„Við höfum pælt í þessu,” heldur Nadia áfram. „Kannski snýst þetta að einhverju leiti um félagslega mótun sem gerir það að verkum að stelpur eru ekkert í því að hoppa upp á svið og reita af sér brandara,” segir hún.
„Nei, stelpur eru bara í freestyle keppnum og bakröddum!” hlær Margrét.
„Þær fá rosa mikla athygli,” skýtur Áslaug inní. „Það segir ýmislegt um þjóðfélagið. Afhverju fá konur svona mikla athygli ef þær fara út fyrir kassann? Eins og konur í rokkhljómsveit – það er alltaf voða áhugavert eitthvað. Ég vildi að það væri ekki þannig. Þetta á ekki að vera neitt merkilegt. En það segir sitthvað um kynjaskiptinguna í samfélaginu.”
„Ég man eftir frétt um stelpu á Akureyri sem vann á dekkjaverkstæði,” segir Margrét. „Það þótti voða spes.”
„Já, og ég man eftir frétt um strák sem var að prjóna!” segir Nadia.
Stelpurnar drífa sig á æfingu og Áslaug mundar tökuvélina. „Fólk er hvatt til að mæta snemma,” segir þær að lokum. „Allir velkomnir, bæði strákar og stelpur!”
Fjörið byrjar klukkan 22:00 á Næsta bar. Hér má finna upplýsingar um atburðinn á Facebook.

