Fagurlega skreyttir kassar fyrir skipulagið

Það eru ófá heimilin sem eru full af dóti stóru og smáu dreyfðu út um allt. Þessi óreiða getur reynt á taugarnar og tekið ánægjuna úr því að slappa af heima hjá sér. Skipulagsdeildir húsgagnaverslana hafa reynt hvað þeir geta að koma með lausnir og þó þær hafi verið allskonar og misjafnar virðist það vera svo að kassar séu bestu lausnin. Já kassar. Flokka allt í kassa.

Og þá er það þetta með kassana. Þeir geta verið alskonar og af öllum stærðum og gerðum. Ál, plast eða pappi. Brúnn, appelsínugulur, glær. Það þarf að velja kassana af kostgæfni því þeir seta sinn svip á heimilið. Og þó þeir séu inn í geymslu eða inn í skáp – það þarf að vanda flokkunarkerfið og merkja allt saman vel. Ekki vill maður þurfa að rífa upp lokið á öllum kössum hússins í leit að föndurdótinu sem átti að vera hérna einhversstaðar!

Á síðunni craftzine.com er skipulag heimilisins alltaf tekið svolítið lengra og þar bendir einn höfunda á hvernig hann kom skipulagi á sitt heimili. Auðvitað með kössum – en, hann dundaði sér aðeins við þá, gerði þá flottari. Pappakassar eru yfirleitt ódýrastir, enda tilvalið að endurnýta til dæmis skókassa og annað slíkt í geymslukassa, en mörgum finnst þeir vera frekar flatneskjulegir. Á einfaldan hátt er hægt að gera þá fallega og persónulega. Sérstök áhersla er lögð á að merkja þá – sem eins og áður sagði getur skipt höfuðmáli. Hér má sjá hvaða leiðir viðkomandi fór í að koma fegurð og skipulagi inn í líf sitt. Góðar hugmyndir þarna á ferð og með smá útsjónarsemi og jafnvel heimsókn í föndurbúð verður skipulagið að stíl.

kass2

kass3

kass1

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?