Stefnumótaþátturinn Djúpa laugin hefur göngu sína á ný á skjá einum um miðjan febrúar en það eru Ragnhildur Magnúsdóttir dagskrár- og kvikmyndagerðarkona og Þorbjörg Marínósdóttir blaðamaður sem stýra þættinum. Þær stöllur hafa verið í óða önn undan farið að skipuleggja og plotta þáttinn, sem sló í gegn á sínum tíma. „Að sumu leiti verður þátturinn með svipaða uppbyggingu og hefur verið,” segir Ragnhildur þegar Miðjan náði af henni tali. „En síðan þátturinn var í gangi síðast hefur margt breyst. Stefnumótamenningin á Íslandi hefur breyst. Fólk hefur verið að færa makaleit af börunum og inn í afþreyinguna. Nú finnur fólk sína ást á internetinu, á kokkanámskeiði, í fjallgöngu. Fólk á öllum aldri er opnara með leitina eftir ástinni. Þátturinn okkar mun taka mið af þessu,” segir Ragnhildur.
Í þættinum eru yfirleitt fjórir þátttakendur, einn sem velur sér stefnumót úr hópi þriggja með útilokunaraðferð að eigin vali. Að því loknu fer fólk á stefnumót, „saklaust en mjög spennandi stefnumót,” segir Ragnhildur brosandi.
Þær stöllur ætla að brydda upp á nokkrum nýjungum og Ragnhildur lofar athyglisverðum uppátækjum. Skráning í þáttinn er í fullum gangi á skjarinn.is. Fólk verður að vera orðið tvítugt til að mega taka þátt en Ragnhildur hvetur alla til að vera með. „Við viljum fá allskonar fólk, úr öllum áttum, af öllum aldri. Þú þarft ekki að vera einungis tvítugur til að vera með – alls ekki,“ segir Ragnhildur en hún er sjálf 35 ára og hefur starfað við kvikmyndagerð og sem útvarps- og sjónvarpskona um árabil. „Við reynum að setja fólk saman í þátt sem á eitthvað sameiginlegt. Því fyllir fólk út upplýsingaskjal um sig þegar það sækir um,“ segir hún og vonast til að hamingjan hitti þátttakendur fyrir.
Hvernig lýst þér á að vinna við að koma fólki saman? „Rosalega vel!,” segir hún glöð. „Ég hef þá skoðun að dægurefni eigi að vera gæðaefni. Mér leiðist þegar dægurefni er dissað og kallað lágmenning. Það fylgjast allir með dægurmálunum og því eiga þau að vera góð og vönduð. Ég tek starfið mjög alvarlega og stefni á að bera á borð hágæðaafþreyingu og dægurefni,” segir hún að lokum.


Skráning er í fullum gangi. vid vildum bara vekja athygli á thví ad eldri tháttakendur ganga fyrir ef their skrá sig fyrir 1. feb.
Verður þátturinn á Skjá einum eins og áður?
http://www.skjarinn.is!!!
Líst vel á þetta! Allt öðruvísi en áður fyrr!