Helgi og Helgi á Helginn.net – nú á Miðjunni

helgarnirNafnarnir, Akureyringarnir og vinirnir Helgi Steinar Halldórsson og Helgi Hrafn Halldórsson hafa síðan í sumar haldið úti videoblogginu Helginn.net. Nú er hafið samstarf Helganna og Miðjunnar þannig að videoblogg þeirra verður aðgengilegt hér á Miðjunni og má finna síðasta þátt þeirra hér neðar í færslunni.

Helgi og Helgi kynntust fyrst þegar þeir unnu saman í Tölvulistanum á Akureyri svo segja má að áhugi á tölvum og tækni hafi til að byrja með leitt þá saman. Helgi Steinar starfar nú sem verslunarstjóri NOVA á Akureyri og Helgi Hrafn sem þróunarstjóri hjá Stefnu Hugbúnaðarhúsi.

Aðdragandi Helginn.net var síðan sá að þeir félagar strengdu það áramótaheit fyrir árið 2009 að blogga einu sinni á dag. Það entist þó í skamman tíma, Helgi Steinar bloggaði í mánuð og Helgi Hrafn í þrjá. Áhuginn á blogginu hvarf þó ekki og um sumarið kviknaði hugmyndin um videoblogg þegar Helgi Hrafn var að sýna nafna sínum Steinari netþáttinn Diggnation. Þá fór boltinn að rúlla og félagi þeirra Örlygur Hnefill blandaði þessu við norðlenska fréttavefinn Akureyri.net og stækkaði bloggið svo það tók á sig þá mynd sem það hefur í dag.

Helginn.net er afar fjölbreyttur þáttur og þeir félagar koma víða við. Enda áhugamálin mörg eins og Helgi Hrafn upplýsir okkur um. „Eins og við höfum sagt þá erum við mikið fyrir tölvur og tækni, og við reynum að hafa eitthvað tæknilegt í þáttunum. Reyndar drap Helgi Steinar þá hugmynd strax að kalla þann hluta þáttarins „Tæknihorn Helga“ (miklar handahreyfingar og hljóð, hermt eftir ljósasjóvi). Hann heldur því fram að það séu svo fáir nördar sem horfa á þættina okkar. En hvað áhugamálin varðar þá hefur Helgi Steinar áhuga á ljósmyndun, ljósamennsku, útiveru, mótorhjóli og er mikill tónlistarunnandi. Á meðan er ég á kafi í tölvum, körfubolta og á von á mínu fyrsta barni. Þó barneignir séu ekkert endilega áhugamál. Sameiginleg áhugamál okkar er sem sagt tæknin og svo eigum við báðir hunda,“ segir Helgi Hrafn.

Viðtökur hafa verið mjög fínar og eru Helgarnir sáttir við áhugann sem þeim hefur verið sýndur. „Heimsóknir hafa alveg sveiflast upp og niður, en „só far só good“. Svo höfum við fengið fullt af skemmtilegum ábendingum frá áhorfendum og árið 2010 á vonandi eftir að verða mjög skemmtilegt. Það er margt framundan hjá okkur,“ segir Helgi Steinar.

Helgarnir leggja áherslu á að þeir hafa aldeilis ekki staðið einir af þáttunum og vilja koma þökkum á framfæri til fjölmargra sem hafa hjálpað þeim að gera þá að veruleika. „Pálmar Edvardsson gerði fyrir okkur merkið og hannaði bolina, Einar Ingi Þorsteinsson hefur verið hljóðmaður með okkur, Hlynur Þór Jensson var tökumaður þegar við byrjuðum. Svo hefur verið rosalega skemmtilegt að sjá hvað fyrirtækin eru dugleg að styðja við bakið á okkur. Bæði vinnuveitendur okkar og önnur stórfyrirtæki hafa tekið vel í það sem við höfum verið að gera. Sem dæmi má nefna Stefnu, Pedromyndir, NOVA, Nýherja, Tölvulistann, Carlsberg, Margt Smátt, Sambíóin á Akureyri, MS Akureyri og fleiri,“ segja þeir.

Helgarnir hafa mikinn áhuga á því að halda áfram með þættina og gera jafnvel ennþá meira úr hugmyndinni. „Við höfum ótrúlega gaman að þessu og þá sérstaklega hvað fólk hefur líka gaman að þessu með okkur. Auðvitað langar okkur að gera þetta enn stærra og höfum við rætt við aðila sem hafa áhuga á annarskonar þáttagerð fyrir netið. Það er bara spurning með tíma og peninga. Við einbeitum okkur að því sem við erum að gera og sjáum svo hvað framtíðin býður okkur uppá,“ segja þeir félagar að lokum.


Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?