
Tónlistarspekingar eru nýbúnir að setja saman árslista sína fyrir árið 2009. Við tileinkum því árinu 2009 þessa þemagetraun, en í henni nefnum við fimm eldri lög sem voru sömpluð af hljómsveitum eða einstaklingum sem voru í sviðsljósinu á árinu sem var að líða. Lögin eru úr hinum ýmsu áttum þannig að þetta er krefjandi.
1. Frankie Knuckles – Your Love
2. Fleetwood Mac-Little Lies
3. Barry Crocker – Neighbours theme 1987
4. Soft Cell – Tainted love
5. Trúbrot – Starlight
Svarið í athugasemdum hér fyrir neðan. Heiður fylgir réttu svari!



Fyrsta lagið var samplað af Animal Collective á plötunni Merriwewather Post Pavillion ?
Fæ ég 1/5 af heiðri ?
Það kemur vel til greina. Sérstaklega ef að þú hefur fyrir því að nefna heiti lagsins.
nr:1 My Girls með Animal Collective
nr:2 Boy Like You með Cheryl Cole
nr:3 Fuck You með Lily Allen
nr:4 SOS með Rihanna
nr:5 -pass
Ef númer 5. er Hermigervill af plötunni Leikur vinsæl íslenzk lög þá er það tæknilega séð ekki sampl heldur coverlag, ekki satt?
Hér er líka eitt lag í viðbót sem mér fannst ágætlega heppnað, aðallega af því að orginalinn er svo góður.
Hér er þetta lag:
http://www.youtube.com/watch?v=vrYK59BOaVU
nr 1 : the captain – biffy clyro
nr 2 :6 little eggs – dj roxx
nr3 : disamr – smashing pumpkins
nr4 : when i’m gone – simple plan
nr 5 : zookeepers boy – mew
best i heimi
Lesendur Miðjunnar eru greinilega að taka við sér.
Stefán er komin með 1,2 og 3 rétt – fjórða svarið væri líka rétt ef að ekki væri spurt um lag frá 2009.
Sallý fær einnig rétt fyrir svar númer 5, hún hefur einnig tæknilega rétt fyrir sér þegar hún segir að samplið hjá Hermigervli sé í raun cover lag.
Þá vantar einungis svar númer fjögur.
Einhver með það?
Þakka þér einnig Sally fyrir góða ábendingu, gera má ráð fyrir fleirum tónlistargetraunum og hver veit nema að Patsy Cline komi þar við sögu með einum eða öðrum hætti.