Ef það hefur farið framhjá einhverjum að það eru hafin prófkjör í Reykjavík fyrir sveitastjórnaskosningarnar þá er augljóst mál að viðkomandi er ekki á Facebook. Því nú herja frambjóðendur á kjósendur sem aldrei fyrr á vinsælasta samskiptavef Íslendinga, Facebook. Margir kvarta sáran yfir áreitinu á meðan sumir eru ánægðir með að fá haldgóðar upplýsingar um frambjóðendur til að taka afstöðu til frambjóðenda.

Núverandi borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
Miðjan gerði úttekt á því hvernig frambjóðendur í Reykjavík eru að nýta sér Facebook í kosningabaráttunni og til kannaði til gaman á óvísindalegan hátt hver myndi sigra ef ,,aðdáendasíðurnar“ jafngiltu atkvæðum. Einnig leitaði Miðjan til sérfræðinga um samskiptasíður til að heyra hversu mikilvægu hlutverki samskiptasíðurnar hafa að gegna sem kynningatæki fyrir frambjóðendur.
Taka skal fram að prófkjör flokkanna eru mislangt á veg komin og er t.d. framboðsfrestur ekki liðinn hjá Samfylkingu og Vinstri Grænum og nú þegar hefur Framsóknarflokkurinn kosið á framboðslista fyrir borgarstjórakosningarnar. Einhverjir frambjóðendur voru því ekki búnir að gefa kost á sér þegar samantektin var gerð í gær og enn aðrir rétt nýbúnir að stofna aðdáendasíðu á Facebook.
Framboðsfrestur hjá Sjálfstæðisflokki er runninn út og í framboði eru fimmtán einstaklingar og þar af allir sitjandi borgarfulltrúar fyrir utan fyrrverandi borgarstjóra Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson.
Jórunn og Dagur B. sigurvegarar á Facebook
Miðjan gerði úttekt á ,,velgengi“ frambjóðenda á aðdáendasíðum þeirra á Facebook. Ef aðdáendafjöldinn á Facebook gefur einhver fyrirheit um hvernig niðurstaða prófkjaranna verður þá er ljóst þegar þetta er skrifað að Jórunn Frímannsdóttir mun leiða lista sjálfstæðismanna – hún á 767 aðdáendur. Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra er hins vegar hvergi að finna á Facebook. Fjarvera hennar skekkir því óneitanlega niðurstöðuna.
Gísli Marteinn Baldursson er annar vinsælasti Sjálfstæðismaðurinn í borginni og því næst kemur Áslaug Friðriksdóttir varaborgarfulltrúi. Hjá Samfylkingu er oddvitinn Dagur B. Eggertsson með flesta aðdáendur eða 551. Næst á eftir Degi kemur svo nýliðinn Hjálmar Sveinsson með 441. Björk Vilhelmsdóttir kemur þar á eftir með 382 meðlimi á sinni aðdáendasíðu. Oddný Sturludóttir er ein þeirra sem nýtt hefur sér ,,viðburðarsíður“ og þar hafa 413 ákveðið að ,,mæta“ um alla borg til að styðja hana í prókjörinu. Hjá Vinstri Grænum er prófkjörið skammt á veg komið en Sóley Tómasdóttir hefur þó útbúið ,,viðburðasíðu“ þar sem 123 segjast ætla að mæta, Þorleifur Gunnlaugsson keppinautur hennar um 1. sætið er hvergi að finna á Facebook. Sama gildir um Ólaf F. Magnússon borgarfulltrúa sem er ekki á Facebook.
Bætt við 15/1 : Enn aðrir frambjóðendur hafa nýtt sér eingöngu sína eigin Facebooksíðu og enn aðrir hafa farið þá leið að búa til ,,hópa“ eða ,,groups“ eins og frambjóðandinn Geir Sveinsson sem er með ríflega þúsund meðlimi. Þessar síður voru ekki þó ekki teknar með úttekt Miðjunnar heldur eingöngu aðdáendasíður frambjóðenda og viðburðasíður sem fundust þegar úttektin var gerð.


Nýtist frambjóðendum sem vanda sig
Andrés Jónsson almannatengill og sérfræðingur um samskiptavefi segir samskiptavefi klárlega skipta máli fyrir frambjóðendur og það sé betra að nota Facebook í kosningabaráttunni en að sleppa því.
,,En það er hægt að gera þetta illa og þá er betra að sleppa því. Það sést til dæmis á því hvað sumir eru lengi að átta sig og eru að koma inn á Facebook fyrst núna, það er auðvitað betra að vera búnir að vera lengi.“
Facebook býður upp á að gerðar séu sérstakar aðdáendasíður sem Andrés segir að sé rétta leiðin til að nota Facebook. „Sumir hafa verið að benda á hvað þetta sé hjákátlegt þegar frambjóðendur eru að biðja fólk um að gerast aðdáendur sjálfs sín. En það er nú bara kjarninn í prófkjörsbaráttu hér á Íslandi, framboðin eru yfirleitt rekin af frambjóðendum sjálfum og þeirra nánustu.“

Andrés Jónsson
Sumir frambjóðendur hafa einfaldlega farið þá leið og nota sína persónulegu facebooksíðu til að kynna sig og sín málefni. Enn aðrir hafa einfaldlega búið til viðburðasíðu og þar sem fólk er beðið um að ,,mæta“ og er þá viðburðurinn oftast skráður frá skráningadegi til lokadags prófkjörsins. Viðburðurinn er þá sagður vera ,,um alla borg“ eins og hjá einu borgarfulltrúanum.
Andrés segir það mikivægasta fyrir frambjóðendur sé að að nýta möguleika síðunnar almennilega.
„Ef frambjóðendur eru að birta myndir, pistla, hugmyndir og slíkt sem gerir aðdáendasíðuna þeirra dýnamískari þá getur þetta virkað vel. En ef frambjóðendur líta á Facebook sem tæki til að senda fjöldapóst, fatta þeir ekki að kjósendur eru almennt klárari á Facebook en frambjóðendur.“
Aðrir samskiptavefir
Hvað með aðra samskiptavefi? Maríanna Friðjónsdóttir sérhæfir sig í ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja um nýtingu samskiptavefja. „Best er að frambjóðendur nýti saman heimasíðuna, Twitter, Facebook og Youtube eða aðra miðla sem að þeir telja sig geta nýtt til að koma hugmyndum á framfæri. Frambjóðendur verða að velja þann stað sem þeir telja sig geta náð best til þeirra sem líklegir eru til að kjósa þá. Sem dæmi eru nú á Twitter samskiptasíðunni mikið af fólki í tækni-og frumkvöðlageiranum og yngri kynslóðin.“

Maríanna Friðjónsdóttir
Maríanna segir mikilvægast af öllu sé að vera með heimasíðu og nýta sér samskiptasíðurnar til að tengja við heimasíðuna. „Frambjóðandi þarf að vera með tengingar inn á Youtube og Vimeo á heimasíðunni sinni til að geta komið hlutum á framfæri sjónrænt, aðalatriðð er að vera með góðar upplýsingar á heimasíðunni og leiða fólk þangað. Ekkert af þessum samskiptavefjum kemur í stað góðrar heimasíðu – allir verða að vera með þannig. Þar sem hægt er að finna nákvæmari upplýsingar um frambjóðendur, greinar og annað slíkt.“
Hvað með þá frambjóðendur sem kjósa að vera ekki á netinu? „Þeir frambjóðendur sem kjósa að vera ekki á netinu eiga erfiðara með að ná árangri,“ segir Maríanna.
Það kemur svo í ljós í lok prófkjaranna hvort það skilar þeim frambjóðendum sem hafa verið duglegastir að „pósta á“ Facebook og „twitta“ á Twitter fleiri atkvæðum en þeir sem létu vera að sækja á kjósendur á alnetinu.


Ég sé að það vantar í listann fyrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, Kristján Guðmundsson. Síðan hans er á slóðinni http://www.facebook.com/home.php?#/pages/Kristjan-Gudmundsson/206239682306?ref=ts
Hér á listann vantar einnig Benedikt Inga Tómasson sem býður sig fram í 5. sætið.
Síðan hans er slóðinni.
http://www.facebook.com/pages/Benedikt-Ingi-i-5-saeti-i-profkjori-Sjalfstaedisflokksins/241296593655?ref=ts
Rak augun í að þarna er ekki að finna Facebook stuðningssíðu Geirs Sveinssonar. Slóðin þangað er: http://www.facebook.com/event.php?eid=243249439532&index=1#/group.php?gid=243043921366&ref=ts
Legg eindregið til að þið lagfærið þetta. Greinin er skrifuð 14.01. og hefur síðan verið lifandi í ca.viku. Skoðið þetta.
Benedikt og Kristján eru beðnir afsökunar á þessu – en við gerð greinarinnar í gær var leitað af öllum með sama hætti og í hvorug skiptin kom upp aðdáendasíða, í tilfelli Benedikts er það vegna þess að hans síða heitir ekki eftir hans fulla nafni og leitarvélin því ekki fundið síðuna hans. Í tilfelli Kristjáns skrifast mistökin klárlega á ritstjórn. Geir Sveinsson er hins vegar með hefðbundna facebooksíðu en ekki aðdáendasíðu.
Við viljum svo benda á að þessi grein er skrifuð eins í henni stendur ,,til gamans og var gerð á óvísindalegan hátt“ og aðeins skrifuð í þeim tilgangi að fjalla um hvernig samskiptasíðurnar eru að virka í prófkjörum.
Var nú að skoða stuðningssíðuna hans Geirs og það er ekki hans persónulega síða, hann er með samskonar síðu og Gísli Marteinn, nema hvað Geir er með ca. 1100 stuðningsaðila á móti ca. 700 hjá Gísla.
ZIyxFz bzimaivrozbn, [url=http://uuqzgsuyzutv.com/]uuqzgsuyzutv[/url], [link=http://ejugqfgflgqa.com/]ejugqfgflgqa[/link], http://addaoziltzfh.com/
comment2, buy hydrochlorothiazide, gynk, buy azithromycin without prescription, sgii, buy darvocet online, ffqfgz, buy adderall online without prescription, 02581, buy ritalin, 280,
comment6, buy zolpidem online, lva, buy diazepam without a prescription, 8-]], buy oxycodone no prescription, ixnm, buy pain pills without prescription, ibfi, buy antibiotics without prescription, 713043,