
Svokölluð "profile" mynd Katrínar á facebook
Katrín Atladóttir er betur þekkt sem katrin.is. Hún hefur haldið úti bloggi í fjölda ára og var um tíma meðal vinsælustu bloggara landsins. Katrín leyfði Miðjunni að skoða Facebook síðuna sína og sjá hvaða upplýsingar er hægt að fá um hana þar.
Ýmsar upplýsingar um hagi Katrínar má finna á Facebooksíðu hennar. Hún segir frá sambandsstöðu sinni (trúlofuð Sveini Eydal) og vísar á Facebook síður bræðra sinna. Það kemur fram að áhugamál Katrínar eru meðal annars badminton, golf og snjóbretti. Hún segir lítilega frá sinni uppáhalds tónlist, sjónvarpsþáttum og bókum og einnig má finna upplýsingar um náms- og starfsferil hennar síðustu árin. Í dag starfar Katrín starfar hjá tölvuleikafyrirtækinu CCP sem viðmótsforritari (forritar viðmótið í EVE online) en hún er með meistaragráðu í hugbúnaðarverkfræði.
Það er líf og fjör á Facebooksíðu Katrínar og hún uppfærir hana reglulega. Ekki aðeins er hún með tíðar statusuppfærslur, heldur hleður hún inn myndum og myndböndum af því sem hún er að sýsla við og gera. Það er greinilegt að Katrín hefur tekið snjónum fagnandi, en á síðunni má sjá nýlegar myndir og myndbönd af henni og unnusta hennar á bretti í Hlíðarfjalli.
Nýlegar statusuppfærslur Katrínar eru þessar:
- „… vill fá skattahækkanirnar í þjóðaratkvæðagreiðslu!”
- „Eruð þið ekki að djóka hvað Bergþór Pálsson væri flottur forseti?”
- „Finnst svo gaman í ostabúðinni! Það er næstum meira gaman þegar maður þarf að bíða eftir afgreiðslu og getur skoðað allt sem fæst í búðinni.. uppáhalds búðin mín!”
Margar statusuppfærslur Katrínar eru mjög húmorískar. Hún á 661 facebookvini og þeir kunna greinilega vel að meta pælingar hennar því hún fær mikil viðbrögð og margar athugasemdir við hverja uppfærslu. Oft virðist sem töluverður einkahúmor sé í gangi milli hennar og félaga hennar þegar hún póstar linkum á fréttir eða síður sem henni finnst fyndnar.
Það má finna 538 myndir af Katrínu inn á Facebooksíðu hennar. Á þeim má meðal annars sjá hana í fjallgöngum og í gönguferðum víða um land, í ferðalagi í Afríku með vinkonum sínum (þar sem hún virðist vera á snjóbretti í eyðimörk!) og mynd af trúlofunarhringnum hennar sem hún segir að sér finnist „vera svo fínn nenenenene”!
Einnig má finna myndband af Katrínu að leysa Rubiks tening (fjórar og hálf mínúta) og að bíta í maríulaxinn sinn.
Í einu myndaalbúmi Katrínar, sem ber nafnið „Once upon a time I was famous” má finna myndir af gömlum blaðaúrklippum síðan Katrín var frægasti bloggari landsins, meðal annars forsíðumynd af henni úr Fókus, frá 2003.
Katrín er virkari á Facebooksíðunni en á bloggsíðu sinni en vinsældir hennar eru greinilega töluverðar meðal þeirra sem komast inn á Facebooksíðu hennar. Eins og starf hennar og nám gefur til kynna er hún tæknivædd og nýtir sér netið til að vera í sambandi við fólk og koma skilaboðum á framfæri. Hún tekur sjálfa sig ekki mjög alvarlega og gerir grín að sér og samfélaginu. Það er nánast hægt að nálgast allar grunnupplýsingar um Katrínu á Facebook síðu hennar, síðan er persónuleg og gefur góða innsýn í líf hennar og störf.

