Brot úr nýrri kvikmynd – Kóngavegur

danniHér má sjá sýnishorn úr kvikmyndinni Kóngavegur sem er væntanleg um páskana á nýju ári. Það er Valdís Óskarsdóttir sem leikstýrir en hún hefur getið sér nafn sem einn fremsti klippari Íslendinga og hefur hlotið hin eftirsóttu BAFTA-verðlaun fyrir klippinguna á kvikmyndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Kóngavegur 7 er hennar önnur kvikmynd sem leikstjóri.

Myndin er drama- og gamanmynd og gerist í nokkurs konar hjólhýsahverfi. Myndin fjallar um Junior sem kemur heim til Íslands eftir þrjú ár í útlöndum í þeirri von að fá lausn sinna vandamála en heimkoman er aðeins öðruvísi en hann bjóst við. Í hlutverkum eru Björn Hlynur Haraldsson, Daniel Brühl (einn af aðalleikurum Inglourious Basterds), Gísli Örn Garðarson, Hanna María Karlsdóttir, Ingvar E. Sigurðssn, Kristbjörg Kjeld, Margrét Vilhjálmsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Ólafur Egilsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður Sigurjónssona og Þröstur Leó Gunnarsson.

Fréttin birtist áður á icelandcinemanow.com sem Miðjan er í samstarfi við.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?