Eiríkur Örn Norðdahl fílar vonda sjónvarpsþætti

EirikurOrnNordahl_20091212_JMSEiríkur Örn Norðdahl er rithöfundur og þýðandi og sendi út frá sér nú fyrir jól bókina Gæska. Þetta er þriðja skáldsaga Ísfirðingsins en Eiríkur býr í Västerås í Svíþjóð. Miðjan spurði Eirík Örn spjörunum úr og komst að því að hann verður geðveikur af því að búa á Íslandi og getur ekki sofið fyrir fótunum á sér.

Nafn: Eiríkur Örn Norðdahl

Aldur: 31

Fjölskylduhagir: Giftur Nödju Widell, faðir Arams Nóa.

Ítarleg starfslýsing, hvernig er hefbundinn vinnudagur hjá þér? Ég vakna upp úr níu-tíu og borða morgunmat og reyni að hrista af mér slenið. Skrifa og/eða þýði frá hádegi fram til sex. Laga kvöldmat. Horfi á sjónvarpsþátt eða bíómyndin með konunni minni, ligg svo og les þar til að ég sofna. Sem er yfirleitt frekar seint. Síðustu þrjá mánuði hefur þetta svo raskast – ég hef verið í fæðingarorlofi.

Afhverju býrðu í útlöndum? Vegna þess að ég verð geðveikur af því að búa á Íslandi. Samt langar mig oft að koma aftur heim. Auk þess er konan mín sænsk og hefur alls kyns erindi að reka í Finnlandi og Svíþjóð, á meðan ég gegni starfi sem hægt er að sinna nokkurn veginn hvar sem er.

Hvað er leiðinlegasta starf sem þú hefur unnið? Að þrífa Stokkhólmsferjur í Helsinki, fullar af finnskum fyllibyttum sem voru búnar að týna skónum sínum, löðrandi í kynsjúkdómum og ranghugmyndum um lífið og tilveruna.

Hvað langaði þig til að verða þegar þú varst lítil? Fæðingarlæknir. Nú langar mig stundum að verða iðnaðarmaður. Trésmiður. Eða reka bókabúð. Eða ritstýra bókmenntatímariti. Eða ritstýra trésmíðatímariti. Ekki það ég kunni neitt að smíða, en mér finnst það heillandi tilhugsun að kunna að smíða.

Ef þú hefðir allan þann tíma og allan þann pening sem þú þyrftir til að vinna að einhverju sem þig hefur alltaf langað til að gera – hvað væri það? Ég myndi opna bókabúð í Reykjavík. Ef ég þyrfti ekki að búa í Reykjavík. Og gæti samt haft tíma til að skrifa.

Hver var uppáhalds bókin þín sem barn? Þúsundogein nótt.

Hver er uppáhalds rithöfundurinn þinn? Gertrude Stein. Og Kurt Schwitters. Dostojevskí.

Afhverju skrifarðu bækur? Vegna þess að mér þykja bækur heillandi. Bókmenntir heillandi. Tungumálið heillandi. Hugsun heillandi.

Hefurðu séð eftir einhverju sem þú hefur skrifað? Ég sé stundum eftir því að hafa verið með fullmikinn gorgeir við fólk sem átti það ekki skilið. Í einhverjum skrifum um bókmenntir hef ég tekið dæmi af höfundi eða bók, sem átti kannski við, en var svo langt í frá eina bókin eða eini höfundurinn sem átti við að það var ósanngjarnt að gera bókina eða höfundinn að fulltrúa fyrir það sem ég var að ræða. En greinar geta auðvitað ekki verið tæmandi listar af höfundum og bókum.

Skrifarðu fyrir frægð og peninga? Það eru engir peningar í þessu. Ég skrifa áreiðanlega að einhverju leyti til að öðlast viðurkenningu – að einhver klappi mér á kollinn og segi að ég sé gáfaður og góður drengur. En ég hef vonandi líka einhverja aðra haldbetri ástæðu til að standa í þessu.

Hver er að þínu mati mesti heiður sem þér gæti hlotnast sem rithöfundur? Ég veit ekki hvort það fylgir þessu nokkur raunverulegur heiður. Nema að vera lesinn. Það er alltaf heiður. Verðlaunaveitingar eru að minnsta kosti ekki raunverulegur heiður, heldur bingó – þær eru skemmtilegar og ég hef ekkert á móti þeim, en maður má samt ekki gleyma því að bókmenntir eru ekki keppnisíþrótt.

Hvað rekur þig áfram í skrifunum? Að klára það sem maður er með í smíðum. Ég ætla alltaf að hreinsa til á borðinu og taka því rólega þegar ég hef lokið við þau verk sem liggja fyrir, en það gerist aldrei, það er alltaf eitthvað nýtt komið af stað áður en þau verk sem maður vinnur að klárast. Sem er óþolandi og manískt ástand. Mig dreymir um að komast í frí.

Er erfitt að vinna svona mikið einn? Nei. Ég er bæði heimakær og einrænn að eðlisfari.

Hvaða bók lastu síðast? Himinninn yfir Þingvöllum eftir Steinar Braga – og er að lesa Síðustu dagar móður minnar eftir Sölva Björn Sigurðsson. Þær eru báðar afbragð.

Hvaða plötu ertu að hlusta á? Bráðabirgðablús með Skúla Þórðarsyni og Sökudólgunum.

Hvaða persónu lifandi/látna raunverulega/skáldaða myndirðu vilja hitta? Í augnablikinu er ég staddur fjarri þeim – og langar bara að hitta konuna mína og soninn.

Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið sem rithöfundur? Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir sagði mér að passa mig á að verða ekki bitur. Það er gott ráð. Og erfitt að fylgja því. Langflestir rithöfundar eru mjög bitrir.

Hvað líkar þér best og verst við í fari þínu? Hvað ég á auðvelt með að pirra mig á hlutunum og hvað ég get verið óþolinmóður. Það er verst, sem sagt, ekki best. Ég veit ekkert hvað er best í fari mínu, sjálfsagt eitthvað. En ég er ekki mikið að velta mér upp úr kostum mínum – það er kannski kostur.

Hvað er vandræðalegasta augnablik lífs þíns? Ég gleymdi einu sinni að fara í sundskýluna og rauk beint fram í sal skýlulaus. Það var mjög vandræðalegt. En ég var ekki nema sjö ára svo það er löngu gróið um heilt.

Áttu þér uppáhalds setningu úr bók, kvikmynd eða lagi sem þú vitnar oft í? There will be time to murder and create – úr Lovesong of J. Alfred Prufrock, eftir TS Eliot.

Hvað er það versta sem einhver hefur sagt við þig? Mér finnst óþægilegast þegar fólk segir eitthvað jákvætt um mig með neikvæðum formerkjum – Þorsteinn frá Hamri kallaði mig einu sinni skýrleiksmann, en einhvern veginn fannst mér eins og hann ætti ekki við að ég væri skýrleiksmaður. Kannski er þetta samt bara noja í mér.

Hver er laumunautnin þín? (ens: guilty pleasure) Vondir amerískir sjónvarpsþættir og blockbuster bíómyndir. Ekki það sé mikil nautn, eða ég skammist mín mikið fyrir það. Það er bara ágætt að slökkva á sér annað veifið og innbyrða hugsunarlausa þvælu. Að sama skapi er gott að fara í tívólí, rússíbana og hringekjur.

Ef þú fengir einn dag á Alþingi sem einráður, hvaða lögum myndirðu breyta? Innflytjendalöggjöf. Engin manneskja er ólögleg.

Hvað heldur þér vakandi á nóttinni? Fótaóeirð (e. restless leg syndrome). Og góðar hugmyndir, ég sofna ekki fyrren þær hafa verið færðar til bókar. Ég sef almennt mjög illa og hef gert í áraraðir.

Í hverju ertu að vinna núna? Ég er að vinna í 400 síðna ljóðabálki sem heitir Hnefi eða vitstola orða.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?