Menning og jólaleg afþreying með börnunum

Coca cola jólasveininn verður ekki á dagskrá Árbæjarsafns - en það  eru 13 hressir íslenskir jólasveinar á Árbæjarsafni

Coca cola jólasveininn verður ekki á dagskrá Árbæjarsafns - en þar verða 13 hressir íslenskir jólasveinar.

Aðventan er einstaklega skemmtilegur tími og það þarf ákveðna útsjónarsemi til að ná að gera allt það skemmtilega sem er í boði. Skera þarf út laufabrauð, fara á skauta, skoða jólasveinana í búðagluggum miðbæjarins, fara á alls kyns jólatónleika og skemmtanir, baka og fleira og fleira og fleira. Nú svo þarf að kaupa jólagjafir, jólatré og skreyta húsið hátt og lágt! En þegar öllu er á botninn hvolft þá er það eina sem skiptir máli á þessum árstíma að hafa það huggulegt og njóta!


Grýla og Leppalúði eru á leiðinni til byggða

Grýla og Leppalúði eru á leiðinni til byggða

Sérkenni sveinanna

Jólasýning Þjóðminjasafnsins er orðin fastur liður í jólhaldi margra barna. Þar er til sýnis jólahús með gripum sem tengjast jólasveinunum. Unga fólkið getur skoðað þá til að hjálpa sér að skilja nöfn jólasveinanna. Í húsinu er meðal annars að finna askinn hans Askasleikis, skyrið sem Skyrgámur sem er svo sólginn í, hrossabjúga sem Bjúgnakrækir reynir að krækja í og margt fleira.

Þessir ágætu náungar mæta svo á svæðið einn af öðrum frá 12. desember. Stekkjastaur kemur fyrstur af fjöllum og kemur við á safninu á slaginu 11 eins og bræður hans gera líka alla daga fram að jólum. Safnið er svo opnað fyrir Kertasníki milli 11 og 12 á aðfangadag, en hann kemur síðastur bræðranna til byggða.

En áður en jólasveinarnir mæta á safnið þá koma foreldrar þeirra Grýla og Leppalúði í heimsókn með jólaköttinn í för. Þau mæta á opnunardegi sýningarinnar 6. desember ásamt fleiri góðum gestum. Kannski mæta þau með fleiri en einn kött því upp úr heimsókn þeirra verður boðið upp á spennandi ratleik á safninu til að finna litla jólaketti sem eru í felum hér og þar í Þjóðminjasafninu.

Krakkar á Árbæjarsafni

Krakkar á Árbæjarsafni

Jólin sem voru í Árbæjarsafni

Jólasýning Árbæjarsafns verður að venju fyrstu þrjá sunnudagana í desember. Þar er hægt að ganga milli húsanna og fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Á röltinu er ekki ólíklegt að rekast á hrekkjótta jólasveina sem bæði guða á gluggann og kíkja ofan í potta. Það er ekki bara hægt að skoða heldur geta börn og fullorðnir föndrað, sungið jólalög og dansað í kringum jólatréð. Afar jólaleg skemmtun.

Leitin að jólunum

Leitin að jólunum

Jólaleikrit

Leitin að jólunum á leikhúslofti Þjóðleikhússins er ekki hefðbundið leikrit, en það hentar smáfólki afar vel að því leyti að það þarf ekki að sitja mikið! Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar ásamt tveimur hljóðfæraleikurum taka á móti litlum leikhúsgestum við innganginn og leiða börnin með leik og söng um leikhúsið. Á leikhúsferðalaginu ferðast börnin inn i ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í dag og í gamla daga. Börnin taka virkan þátt í leitinni að jólunum og kynnast leikhúsinu á splunkunýjan hátt.

Bryndís E. Jóhannsdóttir

(Uppfært 2009 – áður birt í Fyrstu skrefnunum 2007)

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?