Bókarýni – Spor

Spennusagan Spor

Spennusagan Spor

Lilja Sigurðardóttir er nýr höfundur í annars blómlegri glæpasagnaflóru Íslands. Sumarið 2008 skilaði Lilja inn handriti í spennusagnakeppni bókaútgáfunnar Bjarts en þá var staðið fyrir leit að íslenskum Dan Brown. Bjartsfólk segir að sagan sem hún sendi inn hafi verið þrusugóð spennusaga í alla staði og því vekur þessi nýji höfundur upp miklar vonir. Spor er fyrsta bók Lilju. Kolbrún Skaftadóttir las bókina.

Ég sit hér á föstudagskvöldi ótrúlega sátt eftir lestur á nokkuð góðri íslenskri spennusögu.   Bókin fjallar um Magna sem er nýkomin úr áfengismeðferð. Fyrrverandi konan hans er að vinna að morðmáli hjá lögreglunni og fær hann til liðs við sig þar sem raðmorðingi gengur laus innan raða AA samtakanna.

Bókin náði mér mjög snemma og ég var mjög fljót að sjá bæði Magna & Iðunni fyrir mér sem fólk sem ég gæti raunverulega þekkt. Mér fannst bókin renna ljúft niður og ekki vera tilgerðarleg eða neitt slíkt. Það er eflaust erfitt að skrifa um raðmorðingja á Íslandi þar sem morð eru ekki endilega tíður hlutur hér og svo er líka viðkvæmt að ég held að skrifa um AA samtökin sem slík. En ein af ástæðum þess að ég ákvað að sökkva mér ofaní þessa bók var einmitt af því að hún fjallaði um eitthvað sem maður er ekki vanur að geta lesið um.

Mér fannst forvitnilegt að sjá hversu vel mér fannst höfundurinn (sem er kona) ná að hafa aðalsöguhetjuna karlmann en þó fannst mér líka fyndið að fylgjast með Magna í bókinni því hann var ekki endilega þessi týpíski karlmaður, hann kunni vel á mat og var einhvernvegin mýkri heldur en þessi meðalmaður að mínu mati.

Þegar ég var komin aðeins áleiðis í bókinni þá fór mig að gruna hver morðinginn væri og var hálft í hvoru að vona að ég hefði ekki rétt fyrir mér því mér finnst alltaf skemmtilegra að láta koma mér á óvart þegar svona spennusögur eru annars vegar.

Það kom svo í ljós að ég hafði rétt fyrir mér og morðinginn var sú/sá sem ég hélt að það væri.

En þrátt fyrir það svekkelsi þá fannst mér bókin í raunni mjög góð, ég var ánægð með höfundinn því ég elska að lesa bækur sem ég dett svona auðveldlega inn í eins og þessa, bækur sem mig langar helst ekki að leggja frá mér því sagan heldur mér fastri alveg án þess að þurfa að vera að tryllast úr spenningi allan tímann.

Svo langar mig líka að taka það fram að ég mér finnst kápan á bókinni rosalega söluvæn, hún grípur um leið og maður sér hana og á pottþétt eftir að selja vel að mínu mati.

Spor er klárlega bók sem ég kem til með að gefa í einhvern jólapakkann í ár.

Kolbrún Skaftadóttir er mikill bókaormur.

Kolbrún Skaftadóttir

Kolbrún Skaftadóttir

Kaupa bókina.

Skrifa athugasemd

Þú getur notað eftirfarandi HTML kóða: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

InnskráningLoka

Týnt lykilorð?